Ég byrjaði að blogga árið 2002. Það var á annall.is/carlos. Þessi vefur er framhald hans ásamt öllu því helsta sem ég hef skrifað á bloggi mínu á carlos.blog.is og skrif.hi.is/carlosf. Ég hef fram að þessu skrifað um allt milli himins og jarðar en held mig að mestu leyti við nám og kennslutengd efni hér, ásamt því að tölvutækni í þágu skólans fær sérstaka athygli.
Áhugafólki um nám og kennslu skal bent á það að hér er bloggað með sjálfbærni nemandans og fagídjótinn í huga, hvoru megin kennaraborðsins hann eða hún lendir. Sá sem hér skrifar, álítur að mörk kennara og nemanda skuli eingöngu vera byggð á formlegum grunni. Skólinn sem samfélag skilur það, að stundum eru nemendurnir kennaranum fremri. Þegar það gerist, er tilefni til fagnaðar.
Allt efni hér er skrifað undir Creative Commons útgáfuvernd, nánar tiltekið mátt þú:
Afrita, endurbirta og byggja eigin verk á því sem hér er skrifað, svo framarlega sem þú getur upprunans, leyfir öðrum að gera slíkt hið sama og (þetta skiptir e.t.v. minnstu) nýtir verk mín ekki í atvinnuskyni, þar með talda lokaða einkaskólavefi, án þess að leita leyfis.