Öruggir flash leikir

On Laugardagur, 30. janúar 2010, in Internet, Kennsluleikir, Tölvun, by Carlos

fyrir skóla- og bloggvefi. Hér er t.d. Tetris sem hægt er að leika án þess að yfirgefa tölvarann Continue reading »

Tagged with:
 

Tölvustudd hugarleikfimi

On Föstudagur, 23. janúar 2009, in Kennsluleikir, Margmiðlun, Opinn hugbúnaður, by Carlos

Stundum reka á fjörur manns tæki og tól sem eru þess virði að þau séu skoðuð og leikið við þau. Mig langar að vekja athygli á nokkrum þeirra hér. Þau eiga það sameiginlegt að vera ókeypis og nothæf í Linux, Mac OS X og Windows.

Samansafn þrauta er að finna á http://www.gamesforthebrain.com/. Bæði eru þar púsl, skák, orðaleikir, myndaleikir, stærðfræði og rökþrautir sem ættu að gleðja leikandann betur en margt annað.

Af sömu tegund en samt allt öðruvísi er leikurinn www.playauditorium.com sem reynir á rýmisgreind og verðlaunar með fallegu hljóði sem getur aukið tóngreindina. Engin ein rétt lausn við hverju dæmi. Skjáskotið hér til hliðar er ú Auditorium.

Tux4kids hefur tvö forrit sem reyna á vélritun og stærðfræði. Þetta er ókeypis og opinn hugbúnaður, sniðinn að því að auka minni, fingrasetningu, stærðfræði, hugarreikning. Hægt er að sækja þau á http://alioth.debian.org/frs/?group_id=31080. Mér finnst galli að ekki er búið að íslenska þau.

Tuxpaint er frændi ofangreindra forrita og er teikniforrit fyrir yngstu stig grunnskólans, einnig opinn og ókeypis hugbúnaður. Búið er að íslenska hugbúnaðinn. Hægt er að sækja hann á www.tuxpaint.org. Leiðbeiningar eru að finna á http://wiki.khi.is/index.php/Tuxpaint.

Þrjú forritunarmál eru þess virði að þau fái útbreiðslu í skólakerfinu. Scratch, sem var hannað fyrir bandarísk leikskólabörn en er hægt að nota upp eftir öllum skólastigum. Það er vel stutt af netsamfélagi og bókum. Linuxútgáfu er hægt að nálgast í gegnum krókaleiðir. Hægt að sækja á http://skratch.mit.edu.

Alice.org styður við þrívíða hönnun og hentar til sagnagerðar og tölvuleikja. Mun vinna með tölvumódel úr Sims leikjunum í náinni framtíð og hentar sem brú yfir í Java forritunarmálið. Vel stutt bókum og kennslurannsóknum.

ADRIFT hentar til ævintýragerðar án mynda. Sú aðferðafræði ætti að henta vel í tungumálanámi og til að auðvelda nemendum að búa til og þróa sögu- og frásagnargáfur sínar. Gert fyrir Windows eingöngu og kostar lítilræði að eignast útgáfu, sem styður “ótakmarkaða” lengd tölvuleikja.

Tagged with: