tolvari.net » Opinn hugbúnaður

Saga, ræða og glærur
Presentation Zen<object style="margin:0px" width="425" height="355"><param name="movie" value="http://static.slidesharecdn.com/swf/ssplayer2.swf?doc=presentationzen-1207581045216575-9&rel=0&stripped_title=presentationzen" /><param name="allowFullScreen" value="true"/><param name="allowScriptAccess" value="always"/><embed src="http://static.slidesharecdn.com/swf/ssplayer2.swf?doc=presentationzen-1207581045216575-9&rel=0&stripped_title=presentationzen" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="355"></embed></object>

View more documents from Fabian Crabus.

Góð glærusýning, hvernig er hún? Kannski eins og þessi kynning á bók Garr Reynolds. Á vefnum presentationzen.com benti hann á þann lærdóm sem við getum dregið af stórum auglýsingum:

Glærusýning er ræða studd glærum

Gefðu þér góðan tíma til að búa til ræðu þína. Ekkert óeðlilegt við að þurfa fleiri daga til að undirbúa og viða að sér efnið. Prestar eyða gjarnan heilu degi eða meira til undirbúnings prédikunar. Mikilvægar ræður eru allt annað en tækifærisræður og geta tekið nokkrar vikur í undirbúning.

Líttu á ræðuna eins og hún væri saga sem þú segir. Sögur lifa á endurtekningum, innlifun og myndmáli.

Tíminn sem fer í  að finna myndefni til að styðja við hana getur verið mikill þannig að þú skalt byrja snemma á því að skoða myndabanka á borð við www.flickr.com, www.istockphoto.com, eða taka myndir sjálf(ur).

Þegar þú hannar glærusýninguna og semur ræðuna er gott að byrja á pappír eða töflu. Gott getur verið að teikna glærurnar á miða og raða þeim upp þannig að auðveldara verður að tölvuvinna. Söguspjald (sem er A4 síða með 4 römmum og nokkrum línum undir hverjum ramma) getur reynst hjálplegt við hönnun á pappír. Eins getur bunki af A5 eða A6 miðum verið góð byrjun á góðri ræðu.

Hugsaðu um kaflaskiptingu þegar þú hannar glærusýninguna. Hver kafli hefur upphaf og enda.

Fleiri glærur með fáum upplýsingum eru betri en fáar glærur með mörgum upplýsingum.

Óvænt er gott. Kímnigáfa hjálpar. Sannfæring er nauðsynleg. Trú á efninu smitar.

Ekki lesa af glærum. Fólk er fljótara að lesa í huganum en þú ert að tala eða lesa upphátt!

Hvað ætlarðu að gera ef rafmagnið fer – eða tölvan frýs? Ef þú hefur samið ræðu þína á pappír fyrst, geturðu flutt hana án myndefnis eða með því að grípa til myndlíkinga.

Fleiri hugmyndir og ráð hjá Hróbjarti Árnasyni, lektor við HÍ.

Varúð – leiðindi

Death by PowerPoint<object style="margin:0px" width="425" height="355"><param name="movie" value="http://static.slidesharecdn.com/swf/ssplayer2.swf?doc=death-by-powerpoint4344&stripped_title=death-by-powerpoint" /><param name="allowFullScreen" value="true"/><param name="allowScriptAccess" value="always"/><embed src="http://static.slidesharecdn.com/swf/ssplayer2.swf?doc=death-by-powerpoint4344&stripped_title=death-by-powerpoint" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="355"></embed></object>

View more presentations from www.kapterev.com.

Ýmislegt gott má segja um glærusýningar – þangað til að þær verða of margar og of lítið spennandi. Í fyrirlestrinum “Powerpoint heilkennið” benti Sigurður Fjalar Jónsson (útsending 12. mars 2008 og glærur í pdf formi) á nokkra hluti sem vert er að hafa í huga við gerð og notkun glæra. Fyrirlesturinn er þess virði á hlusta á og glærurnar góðar sem dæmi um góða .

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/DZ2vtQCESpk&hl=en_GB&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/DZ2vtQCESpk&hl=en_GB&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>Garr Reynolds for Google

Garr Reynolds flytur um 1 klst. langan fyrirlestur með stuðningi glæra. Mig langar að vekja athygli á því hvernig hann talar við áheyrendur og gerir þá virka – flytur ekki bara fyrirfram ákveðinn texta. Glærusýning er meira en bara það að sýna myndefni, hún er tjáskiptaform lýtur lögmálum ræðumennsku – og listinni að segja sögu.

Glærusýning sem glósur

Ég nota glærur talsvert þar sem það á við en ég ulla á glærusýningar! Yfirleitt verður að vera koldimmt í stofunni til að glærusýning geri sig. Bent hefur verið á að glærusýningar séu stórlega ofnotaðar og þegar nemendaskinnin eru farin að horfa á þetta 5 – 7 glærusjó daglega er nú gleðin yfir upplýsingatækni orðin heldur lítil. Mér hefur gefist best að nota myndvarpa, svarthvítar glærur, prentaðar út og fjölfaldaðar handa nemendum og þá oft möguleikann 3 glærur per blað með línum fyrir glósur til hliðar.

segir Harpa Hreinsdóttir, framhaldsskólakennari, á bloggi sínu. Sumir nota glærur til að koma mikið af upplýsingum til skila – t.d. þegar þeir gera útdrátt úr langri bók eða gera flókna hluti einfaldari. Þá er gott að hafa í huga að glærusýning lifir á myndum en ekki massífum texta. Það merkir að fólk á betur með að muna hluti sem settir eru fram með ljósmyndum og myndrænni framsetningu. Kjarnatexti í glærum má fljóta með, ef orðin eru feitletruð og stór (40 – 60 pkt. minnst!).

Ef tilgangurinn er sá að hjálpa fólki að glósa, þá er best að:

hafa bókina við hendina og strika undir í hana (eða skrifa í spássíðu með blýjanti)

skrifa glósur í ritvinnsluskjal (eða fara að fordæmi Hörpu), hafa letrið stórt og hafa mikið pláss í spássiðu svo að fólk geti skrifað það sem því kemur í hug þegar það les eða hlustar

hafa glærusýninguna með mörgum myndaglærum og

búa til hugarkort (sjá t.d. bók Tony Buzan, “Mind Maps for Kids” (2003), nánar hér)

skoða glósuforrit með tilliti til þess að koma glærupunktum þangað og búa til nýjar glærur

Glærur á netinu

Samvinnusvæði eins og http://docs.google.com eru vel nothæf til að búa til glærusýningar ef takmarkið er að vinna þær úr fleiri en einni tölvu. Vefir eins og http://www.slideshare.com eru fínir ef sýna á glærurnar á vefnum. Ef glærurnar eru fluttar í kvikmyndagerðarforrit og talsettar þá má flytja þær á svæði eins og http://www.sliderocket.com, www.teachertube.com eða www.youtube.com, svo eitthvað sé nefnt.

Myndir

Glærur lifna við ef notaðar eru ljósmyndir og kvikmyndabútar til að koma upplýsingum og hugmyndum til skila. Best er að leita að myndum með hjálp http://search.creativecommons.org, á http://www.flickr.com eða með hjálp http://www.istockphoto.com(kostar!), en þá á líka að passa það að myndirnar séu ekki teknar í leyfisleysi.

Nú, þegar stafrænar ljósmyndavélar eru í flestum símum, er auðvelt að taka sínar eigin myndir. Þegar það er gert, brýtur maður ekki höfundarétt annarra.

Forrit og vefsvæði til glærugerðar

Góð grein og yfirlit á Wikipediu.

http://www.openoffice.org – ókeypis og opinn skrifstofuvöndull fyrir öll tölvukerfi

Microsoft Powerpoint

Apple Keynote

http://www.zoho.com – ókeypis veflægur skrifstofuvöndull

http://docs.google.com – ókeypis veflægur skrifstofuvöndull

http://www.slideshare.com – birtingasvæði fyrir glærusýningar

http://www.sliderocket.com – glærubirting með hljóði og kvikmyndaefni

http://dimdim.com – samvinnusvæði með möguleika til glærusýninga

Heimildir og gullnámur

http://www.garrreynolds.com – prýðilegt kennsluefni

http://www.guykawasaki.com

http://setur.khi.is/fullordinsfraedsla/GlaeruKynningar.aspx – Hróbjartur Árnason um gærukynningar

http://www.presentationzen.com – bók Garr Reynolds í bloggformi

http://www.ted.com – vandaðir fyrirlestrar, með og án glæra

Cliff Atkinson, Beyond Bullets and Points, (Microsoft) 2005 – Sögulínan og geta fólks til að meðtaka það sem sagt er

Garr Reynolds, Presentation Zen, (New Riders) 2008 – saga og hönnun sem grunnur ræðumennsku (og glærugerðar)

Related posts:

Saga, mynd og kennsla

Saga og margmiðlun í skólastarfi

Útrás í almannaeign
Nei, hér er ekki um okkar íslensku útrás að ræða heldur fyrirbærið “Public Domain” sem birtist m.a. í fyrirbærum eins og Wikipediu, leitarvél Creative Commons, forritabankanum SourceForge og hugverkum sem má nota, breyta, gefa, dreifa, aðlaga og jafnvel selja í nýjum umbúðum, ef því er að skipta. Nú, þegar skólakerfið verður sannarlega svelt um milljónir og jafnvel milljarða á komandi árum, verður að hugsa kennslu, tækni og tölvumál upp á nýjan leik. Ríkið hefur þegar mótað sér stefnu varðandi opinn hugbúnað og mig langar að prjóna við þær pælingar.

1. Hægt er að nýta tölvubúnað skólans mun lengur en margir ætla, t.d. með því að færa eldri tölvur af Windows yfir á Edubuntu, sem er Ubuntu Linux með kennsluviðbót. Ég hef verið að prófa sæmilega útbúna tölvu frá 2001 með því kerfi uppsettu í skólanum sem ég kenni og virðist hún vinna jafnhratt og tölva keypt 2006. Meðal forrita sem fylgja Edubuntu útgáfunni eru: Openoffice, Scribus, Gimp, Inkscape og fleiri nauðsynleg tól, ótal kennsluforrit auk þess sem veiruvarnarforrit er óþarft. Hliðstæð tölva í Windows þarf að hafa Adobe Creative Suite og Microsoft Office Pro, veiruvörn, pakki sem kostar hálfa milljón út úr búð – ef nemandi vildi geta unnið í þessum forritum heima hjá sér. Ég veit ekki hvað það kostar menntakerfið í Reykjavík, en Línuxpakkinn er ókeypis og aðgengilegur.

2. Notkun dýrra forritapakka og vanhugsuð notkun margmiðlunarefnis í skólakerfinu ýtir undir hugverkastuld. Þurfi ég að nota Adobe Photoshop í skólanum til að vinna ljósmynd og á ekki þann pakka heima (kostar um 100þús), þá er freistandi að stela honum á netinu. Því er betra að venja nemendur við notkun ókeypis hugbúnaðar strax á grunnskólastíginu og hugsa ekki um þessi dýru, keyptu og lokuðu fyrr en í háskóla í fyrsta lagi.

Google - Nákvæm leit

3. Þótt það sé leyfilegt að nota hvaða hugverk í skólastarfi, svo framarlega sem skólinn á löglegt eintak þess, má ekki sýna verk sem innihalda þau utan skólans. Þarmeð má ekki sýna þau á heimasíðu eða á skólaskemmtun þar sem aðrir en þeir sem tilheyra skólanum koma á. Því er betra að skólinn nýti sér ekki leitarvélar eins og Google umhugsunarlaust (hægt er að velja “nákvæmari leit” > “Notkunarréttur” sbr. myndin hér til hliðar). Þetta krefst auðvitað vandaðra vinnubragða og nákvæmrar heimildarfærslu. Ég hugsa samt að krakkar frá og með 6. bekk ættu að geta ráðið við að vinna á þennan hátt, sérstaklega ef kennari leyfir þeim eingöngu að nota Google á ofangreindan hátt eða notar leitarvél Creative Commons fyrir allt sem finna á.

Mig langar að lokum að benda á bók James Boyle,  The Public Domain sem ókeypis en verðmætt innlegg í umræðuna um hvað má og hvað má ekki, hvað er eðlileg notkun hugverka og hvað óeðlileg. Bókin er sjálf varin Creative Commons hugverkarétti og er tekið við frjálsum framlögum vegna lesturs og notkunar.

Einskonar eftirmáli

Hvernig er hægt að hafa í grautinn ef maður gefur hugverk sín? Hvernig eru hugbúnaður á borð við OpenOffice fjármagnaður? Frjáls framlög, góður bakhjarl (t.d. í stöndugu fyrirtæki á borð við Sun) eða með þvi að höfundur fái mörg tækifæri til fyrirlestra, kennslu, ráðgjafar eða önnur, hliðstæð störf. Höfundar vinsælla forrita selja boli, bolla, húfur. Loks geta þeir sem borga fyrir opinn, ókeypis hugbúnað komið óskafídusum sínum ofar á “to-do” lista forritaranna.

Áður birt á carlos.blog.is

No related posts.