Góð glærusýning, hvernig er hún? Kannski eins og þessi kynning á bók Garr Reynolds. Á vefnum presentationzen.com benti hann á þann lærdóm sem við getum dregið af stórum auglýsingum:
Presentation Zen
View more documents from Fabian Crabus.
On Fimmtudagur, 15. janúar 2009, In Almenningur, Internet, Kennsluhugmyndir, Opinn hugbúnaður, By Carlos
Nei, hér er ekki um okkar íslensku útrás að ræða heldur fyrirbærið “Public Domain” sem birtist m.a. í fyrirbærum eins og Wikipediu, leitarvél Creative Commons, forritabankanum SourceForge og hugverkum sem má nota, breyta, gefa, dreifa, aðlaga og jafnvel selja í nýjum umbúðum, ef því er að skipta. Nú, þegar skólakerfið verður sannarlega svelt um milljónir og jafnvel milljarða á komandi árum, verður að hugsa kennslu, tækni og tölvumál upp á nýjan leik. Ríkið hefur þegar mótað sér stefnu varðandi opinn hugbúnað og mig langar að prjóna við þær pælingar. (meira …)