Ég kenndi 8. og 9. bekkjar krökkum í UT vali í gær í fyrsta sinn í nýja skólanum mínum. Hafði tvær tölvur við hendina, aðra Windows XP og hina Ubuntu 9.04. Notaði Ubuntu tölvuna til að hugflæða (VYM) og til að sýna þeim Open Office. Í ljós kom að þeim fannst ekkert að því að skoða stýrikerfi sem kostar ekkert og er fullt af hugbúnaði sem kostar ekkert og er veirulaus. Faðir eins þeirra notar Ubuntu heima hjá sér og einn krakkanna (af 18) notar Mac OS X.
Ég hef Ubuntu tölvuna opna í hljóðveri sem ég bjó til fyrir 6. bekkinn minn, og þeim krökkum finnst ekkert að því að nota Audacity. Spyrja ekki einu sinni um stýrikerfið. Eru ánægð ef þau skilja gluggaumhverfið.
Nóg ástæða til að prófa Linux.
Ég keypti mér ódýra Toshiba fartölvu, tveggja örgjörva. Eftir að hafa slegist við Windows Vista um skeið bætti ég Linux á hana, með hjálp Wubi innsettningarforritsins (www.wubi-installer.org).
Út úr kassanum vann nýjasta Ubuntu (9.04) mun betur en Windows og með því að hlaða niður öllum þeim forritum sem mig vantaði (í gegnum synaptics package manager), ókeypis vitaskuld, var hér komin öflug vinnutölva. Tilbúin í hvað sem er.
Nokkuð maus var við að setja inn flash stuðning (fyrir Youtube), en einföld leit í Google (flash 10 ubuntu) og svolítil afritun-skeyting í Terminal var nóg til að kippa því í lag.
Eftir nokkra stund komst ég að því að það, að hafa Windows og Linux á sömu tölvunni, var ekki nógu stöðugt. Ég sótti mér Ubuntu (http://www.ubuntu.com/getubuntu/download) og brenndi á disk (.iso – kerfisdisk) og setti yfir tölvuna. Endurstillingar kerfisins gekk hraðar nú, enda vissi ég nokkurn vegin hvað ég vildi.
Næsta skref var að skoða aðrar Linux útgáfur og setja þær inn. Ég prófaði OpenSuse með KDE viðmóti í einn dag. Prófaði líka Fedora með Gnome viðmóti. Eins fannst mér Vector Linux áhugavert, en setti það ekki inn þar sem það krafðist þess að ég skipti upp harða diskinum í parta. Það kann ég ekki (ennþá). Ég endaði á að fara til baka í Ubuntu og komst þá að því mér til mæðu að það vill ekki tengjast netinu í skólanum (þótt það tengist annars staðar).
Næsta skref
Ég ætla að setja tölvuna þannig upp að ég geti verið með nokkrar útgáfur í gangi í einu (multiboot) til að prófa þær. Markmiðið er að finna útgáfur sem henta elstu tölvunum í skólanum og útgáfur sem mér líkar. Þessi grein (http://blog.linuxtoday.com/blog/2009/08/painless-linux.html) lofar góðu í því sambandi.
Trú mín
Tíminn er að koma, að fólk, líka kennarar nálgast valkosti við keypt forrit og keypt stýrikerfi. Þeir tímar hófust með kreppunni og niðurskurði í skólum og nú er svo komið, að gömlu tölvurnar verða ekki endurnýjaðar.
Kennarar eru vanir því að vinna eins lengi og þurfa þykir, þannig að ef hægt er að gera hluti þannig að þeir kosti ekkert nema lengri vinnudag og skili sér í skilvirkara skólastarfi, þá er von að hlutirnir gangi upp. Það er mín trú.