Mér hefur alltaf þótt gott að geta stutt við uppbyggingu til sjálfshjálpar. Kannski af því að ég ólst upp við það að betlarar hringdu á bjöllunni reglulega á mínu æskuheimili. Þeir voru (og eru) áberandi á götum þar sem ég ólst upp. Mér var kennt að gefa ekki peninga heldur brauðhleif, ávexti eða annan mat sem maður hafði keypt í bænum.
Þessvegna finnst mér gott þegar lítil, manneskjuleg verkefni rekast á fjörur mínar, sem ég get stutt við og séð dafna. Ekki verra að það er á sviði, sem ég hef brennandi áhuga á, kaffi. Ekki verra að fésbókarvinur og kollegi í kaffibransanum stendur fyrir því.
Jim Hoffmann (jimseven.com setti saman þetta kennslumyndband um Chemex kaffiuppáhellinguna. Tumi og Ingibjörg gáfu okkur hjónum eitt sett (mínus ketilinn) í fyrra og ég verð að játa mig orðinn háðan þessu kaffi.