Öruggir flash leikir

On Laugardagur, 30. janúar 2010, in Internet, Kennsluleikir, Tölvun, by Carlos

fyrir skóla- og bloggvefi. Hér er t.d. Tetris sem hægt er að leika án þess að yfirgefa tölvarann

Continue reading »

Tagged with:
 


Wordle: þýskunámskeið

Eftir helgi hefst þriðja vikan í þýskuvali í Sunnulækjarskólanum. Skráðir eru tíu nemendur úr 9. bekk. Markmið kennslunnar eru einföld. Kynna fyrir þeim tungumálið og menningu þýskumælandi landa. Gera nemendum kleift að tjá sig um nauðsynlegustu málefni. Það sem er óvenjulegt er að við notumst ekki við námsbækur, enda nær kreppan líka til Árborgar og þetta mátti ekki kosta mikla peninga.

Continue reading »

Tagged with:
 

Orðstír og eyðilegging

On Fimmtudagur, 15. janúar 2009, in Internet, by Carlos

Future of ReputationFacebook er eins og hvert annað torg í hvaða byggðalagi sem er. Allt sem þú gerir þar er sýnilegt þeim sem fara um. Sumt er þér til sóma, annað ekki.

Svona er það um bloggið, spjallið, blaðaskrif, orðræðu og hvað annað sem við gerum á opinberum vettvangi.

Enginn getur hlaupist undan leitarvélinni Google og enginn getur verið óhult fyrir vakandi auga almennings, sem oftar en ekki er vopnaður ljósmyndavél eða farsíma með myndavél, albúinn að fanga augnablikið.

Meðvitund almennings nær til allra skúmaskota. Menn eru að vísu misfljótir að gleyma, en á stundum fylgir dauður og rotnandi orðstír manns hvert sem maður fer.

Sem þátttakendur í einu stærsta málfundarfélagi Íslands, blog.is, eigum við að vera okkur meðvituð um áhrif orða okkar. Sömu meðvitund eigum við að hafa með okkur út í sérhvert samfélag sem við ræktum á netinu. Bók Daniel Solove, Future of Reputation (Yale) 2007 ætti að vera okkur öllum skyldulesning. Hvort sem við skrifum undir nafni eða ekki.

Continue reading »

Tagged with: