Eðlisfræði Avatar fyrir kennara

Það er ekki oft að vísindaskáldsaga verður nógu vinsæl til að hægt er að nota hana í kennslu í grunnskóla. Ég held að Avatar sé ein þeirra. Persónurnar eru flottar, söguþráðurinn flækist ekki fyrir upplifuninni og mórallinn er heilbrigður: Mennska ofar græðgi.

Þar sem ég á að kenna bæði eðlis- og stjörnufræði í 6. bekk, ákvað ég að leita gagna um eðlis- og stjörnufræði Avatar. Þetta með fljótandi fjöllin, þyngdaraflið og segulmögnunina er ekki bara augnayndi heldur áskorun til kennara um að sýna hvernig þetta er hægt í kennslustofunni! Með því að tengja vona ég að krakkarnir verði til í að skoða eigið sólkerfi betur.

Færsla í Wikia svæði helgað Avatar, skoða hér. Pandorapedia er einnig komin á netið, skoða hér. Grein í Christian Science Monitor, skoða hér (28.12.2009). Í greininni er vísað í eftirfarandi bók, sem ég ætla að hafa til sýnis (brot) hér.

Tagged with:
 

Maurar?

Grand Arche - La Defence

Nei, mannfólk. Stóri boginn í Paris. Hægt er að undirstrika smæð manna með hönnun mannvirkja. Prýðilegt myndefni og fín stúdía í mannfélagi innan um stórvirki sögu og framtíðar.
 

horft frá la defence til sigurbogans

Horft undir bogann, lyfturnar fara upp um kaðlana neðst á myndinni hér fyrir neðan.

horft frá la defence til sigurbogans

Tagged with:
 

Völundarhús

 

Völundarhúsið við La Defence

La Defense er gamla útstöð Parísar, virkið sem gætti aðgöngu að borginni í norðri. Þar er risið nútímaþorp með byggingum sem ætla mætti að hafi orðið vísindaskáldsögum síðustu kynslóðar uppspretta innblásturs. Myndin hér fyrir ofan er af norðurhlið ‘Grand Arche’ og er völundarhús/skjólveggur úr gleri.

Tagged with: