Fyrsta skriffærið mitt var griffill og tafla. Tafla af því að það var ódýrara að nota hana en pappír og vegna þess að tilhlökkunin að komast yfir á pappír hvatti mann til dáða að vanda sig. Ég var 6 ára í þá daga og ég man ennþá eftir þeirri gleði, að fá að skrifa með blekpenna í stílabókina mína, 6 mánuðum eftir að ég var hættur að skrifa á litlu töfluna. Continue reading »
Fengið frá Notcot – sýnivefur hönnuða á netinu.
Ég hef gaman að því að spá í það hvernig hlutirnir líta út og hvað gengur upp og hvað ekki. Mér finnst einnig nauðsynlegt að sýna nemendum mínum hvar þeir geta sótt sér hugmyndir að eigin verkum. Í þeim anda vil ég benda á frábæran vefhönnunarvef, sýni- og prófunarvefinn http://www.csszengarden.com.
Þessi færsla fær að standa hér með opnum athugasemdareit – umræðuefnið er hönnun á netinu.

