tolvari.net » Google

Google Docs í stað OpenOffice!
Nýja Ubuntu stýrikerfið fyrir nettölvur (10.04) mun nota Google Docs í stað OpenOffice skrifstofuvöndulsins. Það sýnir að netlæg vinnsla og geymsla gagna sækir á og að Google skrifstofuvöndullinn er orðinn nógu góður til að vera eini skrifstofuvöndullinn sem tiltekinn hópur notenda hefur aðgang að “út úr kassanum”.

Fyrir skóla getur þetta þýtt að skólatölvur þurfa aðeins að hafa vafra innsettan til að búa til skrifstofuskjöl og sameiginleg skjöl skólans geta verið skilgreind í hópum sem Google geymir fyrir skólann. Það getur sparað skólanum að halda úti eins og einum skráarþjóni. Ekki er ónýtt að Google Docs getur nú geymt hverskonar skjöl fyrir notendur, ekki aðeins skrifstofuskjöl heldur líka myndir, .pdf skjöl og annað sérhæfðara.

Meira um þetta hér:

http://digitizor.com/2010/02/05/openoffice-dropped-from-ubuntu-netbook-edition-10-04/

Related posts:

Notkunarskilmálar Google Docs

OpenOffice.org 1.1

Örugg gagnageymsla

Google gleypir
… meir og meir. Nú er ég búinn að tengja þetta blogg við Google Analytics. Stjórnendur skrif.hi.is bjóða upp á tenginuna, frekar en að sækja plögg sem gerir svipað. Í sjálfu sér sársaukalaus aðgerð. En samt er rétt að spyrja sig af og til hversu sniðugt það er að lifa í skugga stórveldis.

Google býður upp á leitarvél og hún heldur utan um upplýsingar um hegðun okkar á netinu. Dálítið eins og Gallup.

Google býður upp á hýsingu heimasvæðis, skjala, mynda, kvikmynda og texta bóka. Með því að nota þá þjónustu og neyta þess sem þar er að finna, lærir Google mikið um okkur og heldur því til haga.

Í hvert sinn sem við þiggjum þjónustu Google annars en leitarvélarinnar, býðst okkur að láta fyrirtækið “gleyma” vefferli okkar. Það er ekki svo að gleymskan sé fyrsti kostur, maður þarf að muna að velja sig frá stálminninu.

Þekkinguna á hegðun okkar notar Google til að selja auglýsingar. Það er í sjálfu sér meinlaust ef maður er fullveðja einstaklingur. En netið gerir ráð fyrir því að frá 13 ára aldri viti maður fótum sínum forráð, sbr. inntökuskilyrði Facebook, sem eru þverbrotin af 6. og 7. bekkjar nemendum mínum. Verði þeim á þá sjá það allir. Þökk sé stálminni Google fennir síðan ekki í sporin, eins og dæmin sanna.

Bara þetta síðasta ætti að fá sérhvern kennara að staldra við og hugsa áður en hann nýtir sér “ókeypis” þjónustu risanna í þessum heimi.

Ef eina ástæðan er sú að “það er ókeypis” þá ætti maður að muna, að ekkert er án kostnaðar í þessum heimi.

Related posts:

Google Docs í stað OpenOffice!

Notkunarskilmálar Google Docs

www.google.org og Ruth Gledhill

Útrás í almannaeign
Nei, hér er ekki um okkar íslensku útrás að ræða heldur fyrirbærið “Public Domain” sem birtist m.a. í fyrirbærum eins og Wikipediu, leitarvél Creative Commons, forritabankanum SourceForge og hugverkum sem má nota, breyta, gefa, dreifa, aðlaga og jafnvel selja í nýjum umbúðum, ef því er að skipta. Nú, þegar skólakerfið verður sannarlega svelt um milljónir og jafnvel milljarða á komandi árum, verður að hugsa kennslu, tækni og tölvumál upp á nýjan leik. Ríkið hefur þegar mótað sér stefnu varðandi opinn hugbúnað og mig langar að prjóna við þær pælingar.

1. Hægt er að nýta tölvubúnað skólans mun lengur en margir ætla, t.d. með því að færa eldri tölvur af Windows yfir á Edubuntu, sem er Ubuntu Linux með kennsluviðbót. Ég hef verið að prófa sæmilega útbúna tölvu frá 2001 með því kerfi uppsettu í skólanum sem ég kenni og virðist hún vinna jafnhratt og tölva keypt 2006. Meðal forrita sem fylgja Edubuntu útgáfunni eru: Openoffice, Scribus, Gimp, Inkscape og fleiri nauðsynleg tól, ótal kennsluforrit auk þess sem veiruvarnarforrit er óþarft. Hliðstæð tölva í Windows þarf að hafa Adobe Creative Suite og Microsoft Office Pro, veiruvörn, pakki sem kostar hálfa milljón út úr búð – ef nemandi vildi geta unnið í þessum forritum heima hjá sér. Ég veit ekki hvað það kostar menntakerfið í Reykjavík, en Línuxpakkinn er ókeypis og aðgengilegur.

2. Notkun dýrra forritapakka og vanhugsuð notkun margmiðlunarefnis í skólakerfinu ýtir undir hugverkastuld. Þurfi ég að nota Adobe Photoshop í skólanum til að vinna ljósmynd og á ekki þann pakka heima (kostar um 100þús), þá er freistandi að stela honum á netinu. Því er betra að venja nemendur við notkun ókeypis hugbúnaðar strax á grunnskólastíginu og hugsa ekki um þessi dýru, keyptu og lokuðu fyrr en í háskóla í fyrsta lagi.

Google - Nákvæm leit

3. Þótt það sé leyfilegt að nota hvaða hugverk í skólastarfi, svo framarlega sem skólinn á löglegt eintak þess, má ekki sýna verk sem innihalda þau utan skólans. Þarmeð má ekki sýna þau á heimasíðu eða á skólaskemmtun þar sem aðrir en þeir sem tilheyra skólanum koma á. Því er betra að skólinn nýti sér ekki leitarvélar eins og Google umhugsunarlaust (hægt er að velja “nákvæmari leit” > “Notkunarréttur” sbr. myndin hér til hliðar). Þetta krefst auðvitað vandaðra vinnubragða og nákvæmrar heimildarfærslu. Ég hugsa samt að krakkar frá og með 6. bekk ættu að geta ráðið við að vinna á þennan hátt, sérstaklega ef kennari leyfir þeim eingöngu að nota Google á ofangreindan hátt eða notar leitarvél Creative Commons fyrir allt sem finna á.

Mig langar að lokum að benda á bók James Boyle,  The Public Domain sem ókeypis en verðmætt innlegg í umræðuna um hvað má og hvað má ekki, hvað er eðlileg notkun hugverka og hvað óeðlileg. Bókin er sjálf varin Creative Commons hugverkarétti og er tekið við frjálsum framlögum vegna lesturs og notkunar.

Einskonar eftirmáli

Hvernig er hægt að hafa í grautinn ef maður gefur hugverk sín? Hvernig eru hugbúnaður á borð við OpenOffice fjármagnaður? Frjáls framlög, góður bakhjarl (t.d. í stöndugu fyrirtæki á borð við Sun) eða með þvi að höfundur fái mörg tækifæri til fyrirlestra, kennslu, ráðgjafar eða önnur, hliðstæð störf. Höfundar vinsælla forrita selja boli, bolla, húfur. Loks geta þeir sem borga fyrir opinn, ókeypis hugbúnað komið óskafídusum sínum ofar á “to-do” lista forritaranna.

Áður birt á carlos.blog.is

No related posts.