Nýja Ubuntu stýrikerfið fyrir nettölvur (10.04) mun nota Google Docs í stað OpenOffice skrifstofuvöndulsins. (meira …)
… meir og meir. Nú er ég búinn að tengja þetta blogg við Google Analytics. Stjórnendur skrif.hi.is bjóða upp á tenginuna, frekar en að sækja plögg sem gerir svipað. Í sjálfu sér sársaukalaus aðgerð. En samt er rétt að spyrja sig af og til hversu sniðugt það er að lifa í skugga stórveldis.
- Google býður upp á leitarvél og hún heldur utan um upplýsingar um hegðun okkar á netinu. Dálítið eins og Gallup.
- Google býður upp á hýsingu heimasvæðis, skjala, mynda, kvikmynda og texta bóka. Með því að nota þá þjónustu og neyta þess sem þar er að finna, lærir Google mikið um okkur og heldur því til haga.
- Í hvert sinn sem við þiggjum þjónustu Google annars en leitarvélarinnar, býðst okkur að láta fyrirtækið “gleyma” vefferli okkar. Það er ekki svo að gleymskan sé fyrsti kostur, maður þarf að muna að velja sig frá stálminninu.
- Þekkinguna á hegðun okkar notar Google til að selja auglýsingar. Það er í sjálfu sér meinlaust ef maður er fullveðja einstaklingur. En netið gerir ráð fyrir því að frá 13 ára aldri viti maður fótum sínum forráð, sbr. inntökuskilyrði Facebook, sem eru þverbrotin af 6. og 7. bekkjar nemendum mínum. Verði þeim á þá sjá það allir. Þökk sé stálminni Google fennir síðan ekki í sporin, eins og dæmin sanna.
Bara þetta síðasta ætti að fá sérhvern kennara að staldra við og hugsa áður en hann nýtir sér “ókeypis” þjónustu risanna í þessum heimi.
Ef eina ástæðan er sú að “það er ókeypis” þá ætti maður að muna, að ekkert er án kostnaðar í þessum heimi.
Nei, hér er ekki um okkar íslensku útrás að ræða heldur fyrirbærið “Public Domain” sem birtist m.a. í fyrirbærum eins og Wikipediu, leitarvél Creative Commons, forritabankanum SourceForge og hugverkum sem má nota, breyta, gefa, dreifa, aðlaga og jafnvel selja í nýjum umbúðum, ef því er að skipta. Nú, þegar skólakerfið verður sannarlega svelt um milljónir og jafnvel milljarða á komandi árum, verður að hugsa kennslu, tækni og tölvumál upp á nýjan leik. Ríkið hefur þegar mótað sér stefnu varðandi opinn hugbúnað og mig langar að prjóna við þær pælingar. (meira …)