Takið eftir tengingu reyks og limra, tónlistar og íþróttar! (meira …)

Tagged with:
 

Þessi kennslumyndbönd eru frekar löng og lítið klippt. Þau eru gerð með GIMP, sem hægt er að sækja á http://gimp.org, en eru hinsvegar hjálpleg við notkun öflugra myndvinnsluforrita eins og PhotoShop og Lightroom frá Adobe.

Grunnur

GIMP grunnur á svæði  mínu á Vimeo.
(meira …)

Orðstír og eyðilegging

Future of ReputationFacebook er eins og hvert annað torg í hvaða byggðalagi sem er. Allt sem þú gerir þar er sýnilegt þeim sem fara um. Sumt er þér til sóma, annað ekki.

Svona er það um bloggið, spjallið, blaðaskrif, orðræðu og hvað annað sem við gerum á opinberum vettvangi.

Enginn getur hlaupist undan leitarvélinni Google og enginn getur verið óhult fyrir vakandi auga almennings, sem oftar en ekki er vopnaður ljósmyndavél eða farsíma með myndavél, albúinn að fanga augnablikið.

Meðvitund almennings nær til allra skúmaskota. Menn eru að vísu misfljótir að gleyma, en á stundum fylgir dauður og rotnandi orðstír manns hvert sem maður fer.

Sem þátttakendur í einu stærsta málfundarfélagi Íslands, blog.is, eigum við að vera okkur meðvituð um áhrif orða okkar. Sömu meðvitund eigum við að hafa með okkur út í sérhvert samfélag sem við ræktum á netinu. Bók Daniel Solove, Future of Reputation (Yale) 2007 ætti að vera okkur öllum skyldulesning. Hvort sem við skrifum undir nafni eða ekki. (meira …)

Tagged with: