WordPress blogg sem ePortfolio

On Þriðjudagur, 27. janúar 2009, in Öryggi, Persóna, Verkmappa, by Carlos

… margir hafa búið til sérstaka síðu um verkefnskil. Er það eitthvað sem fólk ætlar almennt að gera? – Harpa Guðfinnsdóttir 27. janúar.

Þegar rafræn verkefnamappa er hönnuð borgar sig að horfa á miðilinn annarsvegar og útlit hans hinsvegar. Eðli bloggsins er að eftir því sem dagbókarfærslum fjölgar, ýtist eldra efnið niður eftir listanum. Til að finna það aftur þarf að nota efnisorð og flokka, ef langt er liðið frá því að það var skrifað. Heimasíðan gamla eða nútíma CMS (t.d. Joomla!) er ekki svoleiðis. Þar er það efnisyfirlit sem flokkar efnið og auðveldar alla leit.

Pages í WordPress er einmitt þannig. Hægt er að kanna síðu eftir námskeiði (t.d. NKN09v) og síðan undirsíður undir henni, sem hétu skil 1, skil 2 … lokaskil. Þannig væri hægt að móta bloggsíðu að námi.  Bloggið væri hægt að helga hugsunum sem vakna í námi eftir því sem við á. Það þarf hinsvegar að flokka eftir námskeiðum og tengja við efnisorð eftir því sem við á.

Ekki er úr vegi að nýta sér þá möguleika sem gefast af því að hafa sumar færslur “prívat”, “draft” o.s.frv., þannig að munur verði á vinnu- og skilamöppu.

Viðbúið er að þegar námi lýkur verði bloggið lagt niður. Þá þarf að huga að því að hægt sé að flytja færslur úr skólablogginu á nýtt bloggheimili, því að allt sem unnið er í skóla er til vitnis um getu manns. Vinnuveitendur framtíðar munu vilja geta séð hvað í manni býr. Þá er heldur ekki úr vegi að huga að því að sumt hæfir ferli manns, annað ekki. Vilji menn ekki henda sumum færslum, má alltaf gera þær almenningi ósýnilegar með því að merkja þær “private”.

Mynd fengin af Flickr.