Heather McTaggart um skólamódel síðustu þriggja alda.
Aðhald í rekstri grunnskólakerfisins er farið minna mig á anórexískan megrunarkúr. Niðurskurður og uppsagnir, áframhaldandi og sístandandi aðhaldsaðgerðir án þess að neitt komi á móti. Stærri bekkir, færri og eldri tæki, minni endurnýjun bókakostar, minnkuð afleysingaþjónusta v. veikinda, minnkuð þrif og svo má lengi telja. Eðlilegt í kreppu, mætti ætla.
Continue reading »
Mörður Árnason hittir naglann á höfuðið að mínu mati í bloggfærslu í dag:
Kosningin snýst um ákvörðun alþingis frá 29. desember. Hún snýst um það að taka ábyrgð og vinna áfram að endurreisn í samfélaginu – með því að ljúka Icesave-málinu – eða hefja á ný erfiða milliríkjadeilu með gríðarlegum fórnarkostnaði án nokkurrar vonar um betri árangur en í júní og ágúst.
Ég vona að þetta sé ranglega ályktað, fyrir hönd okkar allra. Er hræddur um að það sé tálvon.
Ásta eiginkona mín er skilgreind sem lykilstarfsmaður hjá Kauþingi og vinnur við uppgjör og skýrslugerð. Við hjónin tókum okkar hlut í hlutafjáraukningunni, minn hlutur var um kr. 123.000 og hlutur konunnar um kr. 340.000. Við hjónin áttum samtals rúmlega kr. 8 milljónir í hlutabréfum í Kaupþingi við fall bankans, við skulduðum bankanum ekkert og engin lán voru felld niður,” að því er segir í yfirlýsingu formanns VR. Ekki hægt að taka aðra ákvörðun – mbl.is.
Þótt það sé aldrei gaman að tapa peningum, hvað þá 8 milljónum króna, þá er e.t.v. hægt að hugga sig við það að samtals hafa hjónin líkast til tapað 463000 krónum af raunverulegu fé (nema þau hafi keypt á öðru en nafnverði). Skynsöm að taka ekki lán fyrir þessu til að auka hlut sinn.