Tóbaksauglýsing – án reyks

On Laugardagur, 20. febrúar 2010, in Almenningur, Fróðlegt, Kennsluhugmyndir, Skóli, Vinnan, by Carlos

Hvað er að þessari kvikmynd? (english summary inside!) Continue reading »

Tagged with:
 

Faust (1926) – Murnau með tónlist Nick Cave?

On Sunnudagur, 14. febrúar 2010, in Almenningur, Skemmtun, by Carlos


Ég velti því fyrir mér hvort tónlistin undir þessari útgáfu sé eftir Nick Cave? Kvikmyndin sjálf er tekin af http://archive.org sem er safn efnis sem er í eigu almennings, þ.e. höfundaréttur á ekki lengur við.

Faust (heppinn / hnefi) er flökkusaga frá 17. öld sem hefur víða ratað í bókmenntir, kvikmyndir, leikhús og tónlist. Hún er ein af þessum sögum sem fjallar um innstu drauma mannsins, þann að hljóta hið mesta hnoss og hvað það getur kostað. Undirtónninn er barátta góðs og ills um yfirráð yfir veröldinni.

Sjá nánar á Wikipediu. Meira um kvikmyndina er einnig að finna á Wikipediu.

Tagged with:
 

Metropolis (1927)

On Sunnudagur, 7. febrúar 2010, in Fróðlegt, Skemmtun, by Carlos

Mynd Fritz Lang, Metropolis er ekki til í heild sinni, um fjórðungur er týndur. Hér er útgáfa með spænskum texta ásamt þeim upprunalega þýska.

Tagged with:
 

Sunnudagsbíó: Cyrano de Bergerac

On Laugardagur, 30. janúar 2010, in Skemmtun, by Carlos

Fjarskyldur ættingi vann Óskarinn fyrir leik sinn í þessari mynd frá 1950. Ef það er eitthvað sem José Ferrer gerir ákaflega vel, þá er það framsögnin. Röddin berst, hljómmikil og falleg. Eins finnst mér skylmingaratriðin vel gerð, óþarfi á tölvueffectum, ef menn kunna fag sitt.

Tagged with:
 

Once Upon a Time in the West

On Sunnudagur, 24. janúar 2010, in Almenningur, Margmiðlun, Skemmtun, by Carlos

Classic Cinema Online er vefur sem tekur saman gamlar bíómyndir á Google Video, flokkar og gerir aðgengilegar. Ég setti inn Once Upon a Time in the West (Leone) hér í gluggann við hliðina á. Myndin fær að vera í eina viku þar, en það má einnig sjá hana hér. Ég geri ráð fyrir að hún megi birtast hér, þar sem hún hefur fengið að standa óhreyfð í tvö ár á Google Video.

Tagged with: