Kaffi með vínanda

Irish Coffee @ The Buena Vista IKaffi er flókinn drykkur, eins og vín. Það getur geymt fjölbreytt bragð og það getur verið einfalt. Þegar kemur að því að blanda í það bragðefnum þarf að kunna sér hófs til þess að eitt yfirgnæfi ekki annað. Kaffibarþjónn nálgast síðan kaffidrykki með vínanda frá öðru sjónarhorni en barþjónn. Þar sem einn hugsar fyrst um kaffið og vínið sem krydd, hugsar hinn um vínandann og kaffið sem krydd. Þetta á auðvitað ekki alltaf við, en ég set þetta á oddinn til skýra hvað ræður för í þessum uppskriftum. Í upphafi er kaffið og kaffið skal skína í gegn, annars er uppskriftin ekki kaffi með vínanda heldur öfugt.

Irish CoffeeByrjum á frægasta kaffidrykknum, Irish Coffee. Ótal útgáfur eru til af honum, misvel heppnaðar. Myndin hér fyrir ofan sýnir hvernig staðaldrykkur getur litið út. Hér til hliðar er síðan mynd af því hvernig hann hefur stundum verið framreiddur. Fljótt á litið er sú útgáfa of rík af rjóma, sem mildar drykkinn eins og þykk dúnsæng svala nótt. Ef tilgangurinn er sá, að leyfa hverju hlut sem í drykkinn fer, að njóta sín, þá er þetta ekki leiðin að jafnvægi.

Byrjum á staðaluppskriftinni, sem gerir ráð fyrir 230 ml drykk.

1 msk. púðursykur
30 ml. írskt viský
bragðmikið kaffi
1 cm hristur (ekki þeyttur), þykkur rjómi

Til að ná fram réttu hitastigi er glasið hitað. Gott er að bleyta upp í sykrinum og leysa hann upp í svolitlu viský og setja í hlýtt glasið. Bæta hituðu viský saman við og hræra. Heitt en ekki of heitt kaffið kemur síðan, skilja eftir um 1 cm frá efri brún glassins. Hræra vel. Hrista rjómann og hella (á skeið) í glasið. Bera fram án skeiðar.

Keppnisútgáfa írsks kaffis.Fyrsti sopinn á að vera þannig að hann gefur viskýbragðbætt, sætt kaffi í gegnum rjómann. Ekki bara rjómi! Jafnvægi allra hluta. Ef áfengisbragðið skyggir á kaffið, þarf annað hvort að hafa bragðmeira kaffi eða annað viský. Venjulegt Jameson viský er talið jafnbest, önnur eru annað hvort of mild eða ákveðin og hafa tilhneigingu að fara í samkeppni við kaffið.

Muscovato púðursykur er jafnbestur í þennan drykk, þar sem hann gefur brennda lakkrístóna og fyllingu án þess að verða of sætur. Fyrsta flokks og ekki beiskt kaffi á að koma sínu til skila í drykknum. Loks eiga að vera skýr skil milli rjómans og kaffisins og rjóminn á að hafa slétt yfirborð.

Með því að smella músinni á myndina hér til hliðar má sjá misvel heppnaðar útgáfur af þessum ljúflingsdrykk.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*


*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>