
Starhagi 2 · 107 Reykjavík
692 0088 · carlos.a.ferrer@mac.com
Almennt
Fæddur 1961 í Þýskalandi, búsettur á Íslandi frá 1969 (nema 1989 – 94 í Frakklandi), íslenskur ríkisborgari frá 1994. Kvæntur sr. Yrsu Þórðardóttur, 3 börn fædd 1988 – 1995.
Meðlimur í kammerkórnum “Vox academica” og áhugamaður um mat, drykk, gistivináttu, ferðalög, kvikmyndir og internetið sem fjölmiðill, skólunartæki og skoðanagjafi, tölvustýrð hönnun og umbrot, ljósmyndun, tónlist, lestur og mannleg samskipti.
Kennsla
- Umsjónakennari 6. bekkjar í Sunnulækjarskóla á Selfossi frá ágúst 2009.
- Stundakennari á Menntasviði Háskóla Íslands frá janúar 2009. Meðal verkefna kennsla á opinn og frjálsan hugbúnað og veflæg tól og aðlögun þeirra að þörfum skóla, kennara og námsmanna.
- Kennari í tölvunotkun og vefumsjónarmaður í Borgaskóla frá hausti 2008. Meðal verkefna uppsetning og vefforritun Joomla! vefs skólans, fagstjórn í tölvunotkun.
- Leiðbeinandi við Smáraskóla frá hausti 2007 – vors 2008.
Umsjónarkennsla í 7. bekk og sérkennsla í 9. bekk (ágúst – nóvember), tölvukennsla og tölvuumsjón (frá nóvember).
Umsjón með vef skólans, seta í áfallaráði (tók þátt í mótun viðbragðsáætlunar) og skólanámskrárnefnd. - Bjó til og kenndi námskeið “Áföll og samfélag” á vegum áfallastuðningshóps HSS 2005 og 2006
Námskeiðið var haldið fyrir fagfólk og viðbragðsaðila árin 2005 – 2006 og var markmiðið að leiða saman fulltrúa ólíkra stofnana sem þurfa að vinna saman þegar stór áföll dynja á samfélagi. Nemendur skoðuðu og greindu eigin viðbragðsáætlanir og gerðu tillögur til úrbóta á grunni þekkingar á áhrifum áfalla og streitu. - Leiðbeinandi á námskeiðum um sálræna skyndihjálp (RkÍ) frá 1998
- Leiðbeinandi (í forföllum) í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar 1994 – 2001
- Leiðbeinandi í dönsku við Gagnfræðaskóla Akureyrar 1988 – 1989
Prestsreynsla
- Sóknarprestur í Tjarnaprestakalli í Kjalarnessprófastsdæmi frá 2002 – 2007
- Prestur (afleysing) í Háteigsprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra 2000 – 2001
- Sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi 1994 – 2001
- Meðlimur í áfallastuðningshópi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja 2004 – 2006
Bakvakt, útköll, æfingar og reglulegur stofugangur á sjúkrahúsinu í Keflavík - Tengiliður og ráðgjafi Biskupsstofu við flugslysaæfingar Flugmálastjórnar 2000 – 2004
Liður í starfshæfnisprófun Flugmálastjórnar á áætlunarflugvöllum víða um landið. Samhæfði aðkomu presta og kirkjulegra starfsmanna í æfingum og hélt stutt námskeið. - Meðferðarfulltrúi áfengisráðgjöf, Samhjálp Hvítasunnumanna, sumar 1986
Stuðningsviðtöl og trúarfræðsla. - Æskulýðsfulltrúi Akureyrarkirkju 1988 – 1989
Stýrði og sá um barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar, skipulagði fjölskylduguðsþjónustur og prédikaði. - Kirkjuvörður og starfsmaður Þjóðgarðsins á Þingvöllum, sumrin 1984 og 1985
Kirkjuvarsla, staðarleiðsögn og almenn störf í þjóðgarðinum.
Ýmis störf
- Verkefnisstjóri brauðamats- og starfsmaður hópslysanefndar á Biskupsstofu 2000 – 2002
Gerð áætlana og umsjón með framkvæmd áætlana, samskipti við aðrar stofnanir og frjáls félagasamtök, kannanir og gerð kynningarefnis. Úrvinnsla úr gögnum og tillögugerð til stjórna og nefnda. Brauðamat er sístætt sjálfsmat presta á umfangi starfa sinna (lokaður gagnagrunnsvefur) og gefur kirkjustjórn færi á að meta fjár- og mannþörf prestsembætta um landið allt. - Verkefnisstjóri tilkynninga- og upplýsingavefs gegn barnaklámi hjá Samtökunum Barnaheill júní – nóvember 2001
Setti upp og starfrækti vefinn “Stöðvum barnaklám á netinu!” (www.barnaheill.is), sótti og skipulagði ráðstefnur, kynningar og fræðslu. - Sölu- og markaðsfulltrúi fyrir Kompass hf. á Grænlandi, í Færeyjum og á Íslandi 1987
- Fulltrúi í alþjóðlegri fjölmiðlamiðstöð, leiðtogafundi Regans og Gorbachev í Reykjavík 1986
- Starfsmaður á Kleppsspítala, Reykjavík, sumar 1982
Áfengisdeild, þrif og ófaglærð umönnun skjólstæðinga.
Ólaunuð kirkjuleg og kirkjunálæg störf
- Nemendaverdar- og áfallaráð Áslandsskóla 2002 – 2007 (ritari)
Tók þátt í að móta viðbragðsáætlun skólasamfélagsins v. áfalla, starfshátta skólans í erfiðum málum og sálgæslu við nemendur og kennara skv. beiðni og á forsendum skólans. - Barna og æskulýðsstarf í Seltjarnarneskirkju, Garðakirkju og Neskirkju 1980 – 1986
- Meðlimur í kirkju- og ýmsum kirkjulegum sönghópum og hópastarfi m.a. í Grensáskirkju og Háteigskirkju 1981 – 2002.
Menntun
- Kennaraháskóli Íslands, Grunndeild, Kennsluréttindanám 2007 – 2008
- Leyfisbréf (21. 7. 2008) til grunnskólakennslu og framhaldsskóla (siðfræði) - Háskólinn í Reykjavík, Tölvunarfræðideild til BS prófs, 2002 (ólokið)
- Eberhardt-Karls Universität Tübingen, Guðfræðideild, doktorsnám í samkirkjulegri guðfræði, 1989 – 1994 (ólokið)
- Háskóli Íslands, Guðfræðideild, embættispróf, 1982 – 1988 (1. einkunn).
Önnur menntun, handleiðsla, ráðstefnur
- Joomla! vefumsjónarnámskeið haldið af 3f, félagi UT kennara 2009
- Skyndihjálparnámskeið RkÍ fyrir kennara 2008
- Námskeið í sagnalist, “Sacred Storytelling”, Skálholti 2006 og 2007
- Seminar í sálgreiningu “Eðli ofbeldissambanda”, haldið af “Group Studies Associates” í Bar Harbor, Maine, BNA 2005
- Námskeið í uppeldisfræði, “Að alast upp aftur”, ÓB Ráðgjöf 2003
- Fjögur námskeið Landsbjargar í áfallahjálp, Reykjavík, 1997 – 2000
- Námskeið Rauða kross Íslands fyrir leiðbeinendur í sálrænni skyndihjálp, Reykjavík 1998
- Námskeið Rauða kross Íslands fyrir flokkstjóra í fjöldahjálp, Seyðisfirði 2001
- Ýmis námskeið á vegum fræðsludeild kirkjunnar í barna- og æskulýðsstarfi, 1994 – 2007
- Meðlimur í prédikunarklúbbi Reykjavíkurprófastsdæmis vestra 2002 – 2007
- Hóphandleiðsla presta í Reykjavík, Fjölskylduþjónusta kirkjunnar 2004 – 2006
- Hóphandleiðsla presta á Austurlandi, Fjölskylduþjónusta kirkjunnar, 2000 – 2001
- Einstaklingshandleiðsla 2002-3, 2005-7
- Námsferðir á vegum Kjalarnessprófastsdæmis 2003 og 2005
- Prédikunarsemínör Kjalarnessprófastsdæmis 2004 og 2005
- Fjórar ráðstefnur fyrir leiðbeinendur R.k.Í. í sálrænni skyndihjálp 1999 – 2007
- Alfa-ráðstefna, HTB 2003
- Sex flugslysaæfingar á vegum Flugmálastjórnar 1999 – 2005, fulltrúi biskupsstofu á 4 þeirra, sbr. hér fyrir ofan
- EuroCad ráðstefna gegn áfengis- og fíkniefnavanda, Reykjavík, 1995.
Útgefið efni, netumsjón og námskeið haldin
- Fyrirlestravefur: http://lectures.tumblr.com
- Hraunavinir: http://www.hraunavinir.net
- Tæknimennt: http://www.taeknimennt.net
- Meistaranemi: http://www.meistaranemi.net
- Menntablogg: http://tolvari.net
- Fermingarwiki: http://is.wikibooks.org/wiki/fermingarwiki (2007)
- Grein: Gegn vilja Guðs?: tveir sóknarprestar tjá sig um samkynhneigð og kirkjun, Bjarmi 1998
- Grein: Kristindómur og trúarbrögð mannkyns í guðfræði Hans Küng, Orðið 1993
- Grein: Ecclesia semper reformanda : þankar að loknum lestri rita Lúthers um messuna, Orðið 1987
- Fjögur námskeið “Áföll og samfélag”, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir fagfólk og viðbragðsaðila 2005 – 2006
- Janúarnámskeið ÆSKR um viðbrögð æskulýðsstarfsmanna kirkjunnar vegna gruns um kynferðislega misnotkun 2002
- Um tuttugu námskeið og kynningar sálræn skyndihjálp, á vegum ýmissa deilda R.k.Í., fyrir almenning, skóla, tómstundarfulltrúa og starfsfólk kirkna, 1998 – 2006
- Alfa-námskeið í Kálfatjarnarkirkju 2004
- Námskeið “Sorg og sorgarviðbrögð”, haldið á Fáskrúðsfirði 1995. Fylgdi námskeiðinu eftir með reglulegu hópastarfi.
Færni og áhugamál
Tungumál
- Íslenska
- Enska (frábær tal og ritfærni)
- Þýska (frábær tal og ritfærni)
- Danska (góð tal og ritfærni)
- Franska (sæmileg talfærni eingöngu)
Skrifstofu- og hönnunarforrit (mjög gott vald)
- Microsoft Office
- OpenOffice
- Google Applications
- Apple iWork
Vefumsjónarkerfi og forritunarmál (gott – mjög gott vald)
- Joomla!
- Wordpress
- Moodle
- Mediawiki
- Html/CSS
Tvívíð hönnun og útgáfa (gott – mjög gott vald)
- Indesign, Scribus, MS Publisher
- Photoshop, Gimp, Paint.net
- Inkscape, Illustrator
Fjarkennsla, hreyfimynd og hjóð (gott vald)
- MS Moviemaker
- iMovie
- Audacity
- Ustream.tv, Dimdim o.fl.
- Ræð við hljóðhönnun í tölvu og útsendingar á lifandi efni á internetið. Hef verið útsendingastjóri í fjarkennsluatburðum og söngkeppni Samfés.