tolvari.net » Stjórnmál

Kreppan og grunnskólinn
<object width="480" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/PtxcrnXroac&hl=en_US&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/PtxcrnXroac&hl=en_US&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="480" height="385"></embed></object>

Heather McTaggart um skólamódel síðustu þriggja alda.

Aðhald í rekstri grunnskólakerfisins er farið minna mig á anórexískan megrunarkúr. Niðurskurður og uppsagnir, áframhaldandi og sístandandi aðhaldsaðgerðir án þess að neitt komi á móti. Stærri bekkir, færri og eldri tæki, minni endurnýjun bókakostar, minnkuð afleysingaþjónusta v. veikinda, minnkuð þrif og svo má lengi telja. Eðlilegt í kreppu, mætti ætla.

Ég er ekki stjórnandi. Hef ekki þyrlusýn til að skoða heildarmyndina. En ég get sagt frá því sem ég sé, reyni og heyri. Hefst nú frásögn mín.

Strax um haustið 2008 var komin krafa á grunnskóla Reykjavíkur að hagræða í rekstri og í þeim skóla sem ég kenndi, var hagrætt í skólastofum, þrifum og algert innkaupabann sett á. Yfirvinnu vegna veikinda kennara hætt í unglingadeild. Unglingar fengu að vera í skólanum en höfðu ekkert að gera, ef kennari var veikur. Um veturinn var tilkynnt að stöðugildum yrði fækkað um 6 eða svo, skólaárið 2009 – 2010. Ég held að niðurskurðurinn hafi verið á bilinu 6 – 10%.

Síðasta vetur kenndi ég annars staðar og þar var byrjað að skera niður nú eftir áramótin 2009 – 2010. Bekkir stækkaðir og stöðugildum fækkað. Yfirvinna í lágmarki, engin afleysing fyrir veika kennara eftir hádegi á miðstigi og unglingastigi, ef forfallakennari var annars staðar upptekinn. Þar stendur til að hagræða með því að sameina bekki og fækka kennurum, eins og annars staðar. Sérkennslan tapar einhverjum prósentum af stöðum og námsráðgjöfin, sem var komin niður i 50% virðist ætla að minnka líka. Þess má geta að námsráðgjafinn er trúnaðarmaður nemenda í skólakerfinu.

Nú frétti ég það hjá fyrrum samkennara mínum í Reykjavík, að í drögum að fjárhagsáætlun borgarinnar, gerðum rétt fyrir sumarleyfi, standi til að hagræða enn um 5% í skólum borgarinnar. Hún spurði sig (og mig) hvernig eigi að fara að þessu. Hvernig á að kenna 29 krökkum í bekk á miðstigi, þar sem búast má við að 3 séu afbragsnemendur og 3 búi við náms og/eða hegðunarerfiðleika. Það er nefnilega búið að skera niður í sérkennslunni og ófaglærðum stuðningnum líka.

Grímulaus niðurskurðurinn leiðir til veikindaforfalla kennara (aukið álag og óvissa um framtíðina), námsleiða nemenda (göt í stundaskrá og skortur á merkingarbærum frítíma þegar kennsla ætti að vera), verri þjónustu við þá sem búa við námsörðugleika eða eru bráðþroska og leiðist vegna þess að þau fá ekki að stunda nám við hæfi.

Mér finnst merkilegt að fjölmiðlar láta sér málið óskylt, fjalla ekki um það. Mér finnst verra að kennaraforystan lætur heldur ekki heyra í sér. Mér finnst ógnvænlegt að  hvert kennslustarf sem ég sæki um á Stórreykjavíkursvæðinu eru tugir og allt að á annað hundrað umsækjenda. Skólastjórnendur hafa úr nægu að moða, þegar ráða á í þau fáu störf sem enn má fylla. Verra er að þeir verða að halda áfram að skera á jaðra stofnana sinna eins og þau væru kýli. Jaðrarnir eru sérkennslan, námsráðgjöfin, stuðningur við nemendur, afleysingaþjónusta. Bekkir verða stærri, þeim verður ver þjónað og hætt er við að ekki verði hægt að taka á sértækum málum s.s. vanlíðan, námsörðugleikum og jafnvel félagslegum erfiðleikum fyrr en eftir dúk og disk.

Skólinn mun halda áfram að sinna hlutverki sínu, en hann mun gera það hægar og verr. Í stað þess að geta sinnt hlutverki sínu eins og bestu uppeldisfræðingar hafa kortlagt fyrir okkur, leitum við aftur til verksmiðjufyrirkomulagsins sem við, sem erum 35 ára og eldri munum svo vel. Við urðum að fólki, ekki satt? Var það vegna skólans eða þrátt fyrir hann? Lærðum við vegna þess sem okkur var sagt eða vegna þess sem við reyndum sjálf? Sjálfur læri ég best á því að kenna öðrum.

Til eru betri leiðir en gamla verksmiðjumódelið, þar sem ríkir einstefnumiðlun, rétt/röng svör við spurningum, allir þurfa að vera og verða eins og þeir sem laga sig ekki að gefnum aðstæðum detta út. Einstaklingsmiðun náms og opin skólakerfi eins og sumir skólar hafa tekið upp undanfarin ár skila árangri. Hér kemur stutt innslag um það, hvert skólinn þarf að stefna:

<object width="640" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/l72UFXqa8ZU&hl=en_US&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/l72UFXqa8ZU&hl=en_US&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="640" height="385"></embed></object>

Íslenskir skólar hafa farið þessar leiðir en eru undir þrýstingi að fórna þeim í skjóli hagræðingar. Það er miður, því að fólk eru ekki skrúfur og boltar sem laga má að kerfinu án þess að það komi niður manneskjunni.

Við skulum sjá til, hve lengi þessi kreppa stendur yfir. Ég held að hún verði ekki yfirstaðin, fyrr en skólakerfið verður komið á “status quo ante” (sama stað og árið 2007), en ég býst við að það verði ekki fyrr en eftir 7 – 10 ár. Ekki það að mér finnist árið 2007 hafa verið hið ákjósanlegasta í íslenskri skólasögu, en það er annað mál.

No related posts.

Siðrof
Með lögum skal land byggja en með ólögum eyða.

Ég get ekki réttlætt valdbeitingu gegn valdstjórninni (lögreglunni) með nokkru móti. Til þess hef ég starfað of náið með lögreglumönnum í gegnum tíðina. Ég veit ekki hvernig stendur á því að ungur maður náði að bíta lögreglumann, þegar hann var tekinn fyrir húsbrot í kjölfarið á mótmælum á síðasta ári. Ég ætla ekki að afsaka það bit, en bendi á að verði þessi ungi maður sakfelldur fyrir brotið, er hætt við að hann geti ekki orðið prestur, lögfræðingur eða læknir, sé hann nú námsmaður í háskóla og stundi hann þau fög. Afleiðingarnar eru því nokkrar fyrir hann, verði hann fyrir fullum þunga laganna.

Ég get ekki heldur með nokkru móti skilið, hvernig einstaklingur sem setur fyrirtæki og samfélag í margra milljarða króna þrot, er treyst til að halda áfram að reka téð fyrirtæki. Ég skil heldur ekki hvernig stendur á því að nú er rokið til að ákæra fyrir húsbrot, en lítið fer fyrir frystingu eigna þeirra sem grunaðir eru að hafa tæmt bankana og fyrirtækin til að skara að eigin köku.

Ég á satt að segja erfitt með að sjá það hvers vegna ég ætti sem kennari að hvetja nemendur mína að verða góðir og gegnir þjóðfélagsþegnar, ef siðrofið sem nú er að þroskast, verður varanlegt. Góðir samfélagsþegnar verða nefnilega undir í snákapyttinum sem íslenskt samfélag hefur alið undirfarin ár.

Ég get ekki réttlætt ofbeldi gegn lögreglunni. En það er siðlaust af stjórnvöldum að beita lögreglunni og ákæruvaldinu af hörku gegn mótmælendum meðan þeir sem ollu stjarnfræðilegum skaða fá að sjá silkihanskana. Slík stjórnvöld verða að víkja, því að þau leiða til afsiðunar þjóðarinnar og upplausn samfélagsins.

No related posts.

Skýrt val
Mörður Árnason hittir naglann á höfuðið að mínu mati í bloggfærslu í dag:

Kosningin snýst um ákvörðun alþingis frá 29. desember. Hún snýst um það að taka ábyrgð og vinna áfram að endurreisn í samfélaginu – með því að ljúka Icesave-málinu – eða hefja á ný erfiða milliríkjadeilu með gríðarlegum fórnarkostnaði án nokkurrar vonar um betri árangur en í júní og ágúst.

Ég vona að þetta sé ranglega ályktað, fyrir hönd okkar allra. Er hræddur um að það sé tálvon.

Related posts:

Ekki hægt að taka aðra ákvörðun – mbl.is

Borgunarmaður?
DV beinir sjónum okkar að fimmþúsundmilljón króna lánum tveggja stjórnenda Kaupþings. Þeir munu ekki þurfa að standa skil á, og væntanlega fá niðurfellt. Enda eru hlutirnir sem þeir peningar áttu að kaupa orðnir verðlausir. Þeir nutu að vísu valdanna sem fylgdu hlut þeirra og völdin notuðu þeir til að setja upp svikamyllu sem fær Nígeríusvidlara til að grænka af öfund. Ætli þeir munu þurfa að greiða skatta af niðurfellingu lánanna?

Ég náði ég líka áfanga í dag, klippti í sundur MasterCard greiðslukorti hjá SPRON/Kaupþingi. Það er nú samt ekki svo gott að ég geti fengið það, sem ég skuldaði þar, niðurfellt. Það var of lítil upphæð til þess, og ég gat vel borgað. Bankann eða aðra varðar ekkert um það hvort það sem ég keypti fyrir peningana er verðlaust eða ekki. Ég greiddi skatta af þeim peningum sem ég notaði til að halda í orðspor mitt sem borgunarmanns.

Ég skal segja mig í viðskipti við Kaupþing daginn sem bankastjórar og aðrir sem fengu persónuábyrgðir niðurfelldar, greiða lán sín upp. Ekki fyrr.

No related posts.

Steinum kastað úr glerhúsi
Þingmaðurinn Einar K. Guðfinnsson kvartar yfir ógagnsæi og óþarfa þingmálum á bloggi sínu í dag. Hann hittir naglann á höfuðið með báðum höggum hamarsins. En samt finnst mér rödd hans fölsk. Af hverju skyldi það vera?

Fyrir það fyrsta hefur leynd og ógagnsæi einkennt íslensk stjórnmál um langan tíma. Hann var sjálfur gerandi í þeirri menningu. Í annan stað leyfir hann ekki athugasemdir á bloggi sínu, þannig að sauðsvartur almenningur verður að færa athugasemdir í sín eigin blogg til að tjá sig um málið (þar minnir hann á mávaskítsforstjóra). Í þriðja lagi gerir hann einfalt mál og sjálfsagt tortryggilegra en þörf er á.

Þjóðin er að sönnu ekki einu máli um aðild landsins að ESB. Sannarlega á þjóðin rétt á því að kjósa um það hvort hún gengur í þau samtök eða ekki. Hún hefur auk þess rétt til þess að ræða um kosti þess og galla frá öllum hliðum.

Ekki er hægt að beita flokksaga á umræðuna og óeðlilegt er að hindra að ferlið fari í gang frá Alþingi. Af hverju? Vegna þess að Alþingismenn eru sjálfir á báðum áttum í öllum flokkum og Alþingi skulda þjóðinni heiðarlegar umræður um málið. Kannski er Einar K. Guðfinnsson hræddur við að þjóðin ákveði sín eigin örlög, en láti ekki ráðherra og alþingismenn um það.

No related posts.

Heimilin eða fjármagnseigendur?
Fyrstu aðgerðir stjórnvalda eftir bankahrunið fólust hins vegar fyrst og fremst í því að vernda hagsmuni fjármagnseigenda. Bankainnstæður voru tryggðar að fullu og eignir í peningamarkaðssjóðum ofmetnar. Aðgerðirnar kostuðu skattgreiðendur mikið fé, en urðu til þess að margir héldu ótrauðir áfram að eiga innstæður á bankareikningum …

Á Íslandi er meira svigrúm til þess að jafna vinnu, tekjur og skuldir en í flestum öðrum þjóðum/löndum sem farið hafa í gegnum fjármálakreppu …

Ef núverandi ríkisstjórn grípur ekki til aðgerða með sanngirni, jöfnuð, kvenfrelsi og réttlæti að leiðarljósi verður hún aldrei neitt annað en síðasti kaflinn í sögu nýfrjálshyggjunnar á Íslandi. - Lilja Mósesdóttir í Smugunni

Dómínóáhrif hárra stýrivaxta (gulltrygging fjármagnseigenda) lýsir Jón Þór Ólafsson svona:

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hugsar um hagsmuni fjármagnseigenda í þeim ríkjum sem ráða mestu í sjóðnum, einkum Bandaríkjanna … - Jón Þór Ólafsson á Moggablogginu

No related posts.

Lækkanir í Bretlandi, hækkanir hér
Ég verð að viðurkenna það að mér finnst það vægast sagt nokkuð sérsakt að matarverð skuli lækka í Bretlandi á sama tíma og það hækkar á Íslandi um 20-30%. Kann einhver skýringar á því? … Ríkisstjórn sem leyfir slíku að gerast án þess að grafast fyrir um hvað valdi þessu sérkennilega þróunarferli á samdráttartímum og bregst við er ekki að vinna fyrir fólkið í landinu. – Jón Magnússon á bloggi sínu í dag

Ég reyni að svara. Hér hefur verið landlægt hátt verð á allri vöru um langan tíma. Með löngum tíma á ég við fleiri ár en ég man eftir mér og nálgast ég þó fimmtugt. Allir stjórnmálaflokkar á Íslandi hafa leyft þessu að viðgangast, þrátt fyrir að sumar ríkisstjórnir höfðu reynt að stýra álagningu á vöru með mismiklum árangri.

Ég held að engin íslensk ríkisstjórn hafi nokkurn tímann haft bolmagn til að brjóta á bak aftur einangrun landsins og einokunarverslun þá sem hér viðgengst (ef ekki í orði þá á borði). Íslendingar borga uppsett verð. Jafnvel þótt varan sé helmingi ódýrari á markaðinum í Kaupmannahöfn eða Frankfurt.

Fram til þessa hefur hluti þjóðarinnar því farið í innkaupaferðir til Glasgow og St. Paul til að gera góð kaup. Nú er þeirri leið lokað vegna afglapa ykkar í tíu ár. Menning síðustu 10 – 15 ára bætti gráu ofan á svart með því að ofurselja almenning græðgi þeirra sem peningana og auðlindirnar hafa.

Stjórnmálamenn okkar gáfu DNA, fiskinn, orkuna og framtíðina mönnum sem þeir handvöldu til að ræna okkur. Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking fremst í flokki. Þeir létu af sýndarlýðræðinu og komuð á þjófræði.

Ein ríkisstjórn getur ekki snúið þeirri þróun við á hundrað eða tvöhundruð dögum.

No related posts.

"Frjálslyndur" fýlukall
Með ólíkindum hvað Frjálslyndir töpuðu trúnaði þjóðar á skömmum tíma – eða fjórum árum. Ólíkt því sem Magnús, varaformaður þeirra heldur fram eftir kosningar, álít ég meðferð flokksins á Margréti Sverrisdóttur, sundurþykkni síðustu ára, ummæli gegn útlendingum og þá sérstaklega gegn því að veita palestínskum fjölskyldum hæli á Akranesi hafi átt sinn þátt í að traustið fjaraði undan. Hann má láta gamminn geysa, en ekki batnar vegur hans í bloggheimum eða stjórnmálum við það. Er furða að fáir trúi fagurgalanum?

Verst að maður getur ekki gert athugasemdir á bloggi hans. Hann er búinn að loka og kastar því sínum fýlubombum af húsþaki, ósnertanlegur nema úr fjarlægum bloggum. Ekki mikið hugrekki eða heilindi þar.

No related posts.

Sigurvegari kosninganna er
kerfið sjálft, pýramídi sem byggir á valdníðslu, leynimakki og spillingu. - Sápuópera: Gjööörbreytt landslag.

No related posts.

Obama morðingi – fréttamenn í vandræðum
Fjölmiðlar eru ekki vissir hvernig er best að sýna myndir af glæpavettvangi, þar sem forsetinn stofnaði til blóðbaðs.

Fjölmiðlar vestanhafs eru í vandræðum með það hvernig þeir eigi að fjalla um Barak Obama, sem nýverið braust inn á heimili hjóna og myrti þau án ástæðu. Mál manna vestra er að bíða átekta og sjá hvernig aðrir ætli að fjalla um þetta, þegar allar staðreyndir verða komnar í ljós. Sjá nánar í “The Onion” frá 14. apríl sl.

Þessi “ekkifrétt” kemur í hugann þegar ég horfði á borgarafund gærdagsins. Fulltrúar þriggja flokka standa eða sitja í kastljósinu og hafa þegið mismiklar upphæðir frá fyrirtækjum sem nú eru ekki lengur í náð þjóðarinnar.

Ég gerði ekkert rangt, ég þáði ekki mútur. Ég skal upplýsa allt, ef allir gera það.

Fréttamenn vita að það er ekki hægt að verja svona lagað, ekki ef maður er í stjórnmálum. Stjórnmálamaður eða stjórnmálakona á að stjórna en ekki að rekast eins og rekald með straumnum. Synd fulltrúa þriggja flokkanna sem gripu djúpt í kökuboxið og útdeildu stórfé til að ná inn á þing er nefnilega þessi:

Að hafa tekið þátt í óhófsveislu þennslunnar eins og allir aðrir.

Það er ekki nóg að segja, eftir á að hyggja, að hrunið átti sér stað á þeirra vakt. Með athæfi sínu og hjarðmennskuhætti stuðluðu þeir beint eða óbeint að hruninu. Allt til að vera eins og allir aðrir.

Af hverju rekur enginn fréttamaður þessa varnarleysu til föðurhúsanna? Allir eru að gera það er skammgóður vermir. Ef allir stela, breytist samfélag úr siðmenningu í sjóræningjabæli. Ef allir þiggja mútur búum við í bananalýðveldi. Ef dýrar auglýsingar eru aðgangseyririnn að stjórnmálaframa þá er gæfan en ekki gjörvileikinn og dugnaðurinn það sem illa svikin þjóð fær í leiðtogum sínum.

Við þurfum stjórnmálaforystu, ekki meðhlaupara. Ég fyrir mitt leyti ætla að strika yfir þá frambjóðendur í mínum flokki, sem tóku þátt í óhófinu.

Eins og sumir aðrir ætla að gera.

No related posts.