tolvari.net » Heimur

Stuðningur við uppbyggingu
Mér hefur alltaf þótt gott að geta stutt við uppbyggingu til sjálfshjálpar. Kannski af því að ég ólst upp við það að betlarar hringdu á bjöllunni reglulega á mínu æskuheimili. Þeir voru (og eru) áberandi á götum þar sem ég ólst upp. Mér var kennt að gefa ekki peninga heldur brauðhleif, ávexti eða annan mat sem maður hafði keypt í bænum.

Þessvegna finnst mér gott þegar lítil, manneskjuleg verkefni rekast á fjörur mínar, sem ég get stutt við og séð dafna. Ekki verra að það er á sviði, sem ég hef brennandi áhuga á, kaffi. Ekki verra að fésbókarvinur og kollegi í kaffibransanum stendur fyrir því.

No related posts.

Spurt og svarað um kristna trú mína
Ungur guðleysingi spyr, ég svara.

No related posts.

Kreppan og grunnskólinn
<object width="480" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/PtxcrnXroac&hl=en_US&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/PtxcrnXroac&hl=en_US&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="480" height="385"></embed></object>

Heather McTaggart um skólamódel síðustu þriggja alda.

Aðhald í rekstri grunnskólakerfisins er farið minna mig á anórexískan megrunarkúr. Niðurskurður og uppsagnir, áframhaldandi og sístandandi aðhaldsaðgerðir án þess að neitt komi á móti. Stærri bekkir, færri og eldri tæki, minni endurnýjun bókakostar, minnkuð afleysingaþjónusta v. veikinda, minnkuð þrif og svo má lengi telja. Eðlilegt í kreppu, mætti ætla.

Ég er ekki stjórnandi. Hef ekki þyrlusýn til að skoða heildarmyndina. En ég get sagt frá því sem ég sé, reyni og heyri. Hefst nú frásögn mín.

Strax um haustið 2008 var komin krafa á grunnskóla Reykjavíkur að hagræða í rekstri og í þeim skóla sem ég kenndi, var hagrætt í skólastofum, þrifum og algert innkaupabann sett á. Yfirvinnu vegna veikinda kennara hætt í unglingadeild. Unglingar fengu að vera í skólanum en höfðu ekkert að gera, ef kennari var veikur. Um veturinn var tilkynnt að stöðugildum yrði fækkað um 6 eða svo, skólaárið 2009 – 2010. Ég held að niðurskurðurinn hafi verið á bilinu 6 – 10%.

Síðasta vetur kenndi ég annars staðar og þar var byrjað að skera niður nú eftir áramótin 2009 – 2010. Bekkir stækkaðir og stöðugildum fækkað. Yfirvinna í lágmarki, engin afleysing fyrir veika kennara eftir hádegi á miðstigi og unglingastigi, ef forfallakennari var annars staðar upptekinn. Þar stendur til að hagræða með því að sameina bekki og fækka kennurum, eins og annars staðar. Sérkennslan tapar einhverjum prósentum af stöðum og námsráðgjöfin, sem var komin niður i 50% virðist ætla að minnka líka. Þess má geta að námsráðgjafinn er trúnaðarmaður nemenda í skólakerfinu.

Nú frétti ég það hjá fyrrum samkennara mínum í Reykjavík, að í drögum að fjárhagsáætlun borgarinnar, gerðum rétt fyrir sumarleyfi, standi til að hagræða enn um 5% í skólum borgarinnar. Hún spurði sig (og mig) hvernig eigi að fara að þessu. Hvernig á að kenna 29 krökkum í bekk á miðstigi, þar sem búast má við að 3 séu afbragsnemendur og 3 búi við náms og/eða hegðunarerfiðleika. Það er nefnilega búið að skera niður í sérkennslunni og ófaglærðum stuðningnum líka.

Grímulaus niðurskurðurinn leiðir til veikindaforfalla kennara (aukið álag og óvissa um framtíðina), námsleiða nemenda (göt í stundaskrá og skortur á merkingarbærum frítíma þegar kennsla ætti að vera), verri þjónustu við þá sem búa við námsörðugleika eða eru bráðþroska og leiðist vegna þess að þau fá ekki að stunda nám við hæfi.

Mér finnst merkilegt að fjölmiðlar láta sér málið óskylt, fjalla ekki um það. Mér finnst verra að kennaraforystan lætur heldur ekki heyra í sér. Mér finnst ógnvænlegt að  hvert kennslustarf sem ég sæki um á Stórreykjavíkursvæðinu eru tugir og allt að á annað hundrað umsækjenda. Skólastjórnendur hafa úr nægu að moða, þegar ráða á í þau fáu störf sem enn má fylla. Verra er að þeir verða að halda áfram að skera á jaðra stofnana sinna eins og þau væru kýli. Jaðrarnir eru sérkennslan, námsráðgjöfin, stuðningur við nemendur, afleysingaþjónusta. Bekkir verða stærri, þeim verður ver þjónað og hætt er við að ekki verði hægt að taka á sértækum málum s.s. vanlíðan, námsörðugleikum og jafnvel félagslegum erfiðleikum fyrr en eftir dúk og disk.

Skólinn mun halda áfram að sinna hlutverki sínu, en hann mun gera það hægar og verr. Í stað þess að geta sinnt hlutverki sínu eins og bestu uppeldisfræðingar hafa kortlagt fyrir okkur, leitum við aftur til verksmiðjufyrirkomulagsins sem við, sem erum 35 ára og eldri munum svo vel. Við urðum að fólki, ekki satt? Var það vegna skólans eða þrátt fyrir hann? Lærðum við vegna þess sem okkur var sagt eða vegna þess sem við reyndum sjálf? Sjálfur læri ég best á því að kenna öðrum.

Til eru betri leiðir en gamla verksmiðjumódelið, þar sem ríkir einstefnumiðlun, rétt/röng svör við spurningum, allir þurfa að vera og verða eins og þeir sem laga sig ekki að gefnum aðstæðum detta út. Einstaklingsmiðun náms og opin skólakerfi eins og sumir skólar hafa tekið upp undanfarin ár skila árangri. Hér kemur stutt innslag um það, hvert skólinn þarf að stefna:

<object width="640" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/l72UFXqa8ZU&hl=en_US&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/l72UFXqa8ZU&hl=en_US&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="640" height="385"></embed></object>

Íslenskir skólar hafa farið þessar leiðir en eru undir þrýstingi að fórna þeim í skjóli hagræðingar. Það er miður, því að fólk eru ekki skrúfur og boltar sem laga má að kerfinu án þess að það komi niður manneskjunni.

Við skulum sjá til, hve lengi þessi kreppa stendur yfir. Ég held að hún verði ekki yfirstaðin, fyrr en skólakerfið verður komið á “status quo ante” (sama stað og árið 2007), en ég býst við að það verði ekki fyrr en eftir 7 – 10 ár. Ekki það að mér finnist árið 2007 hafa verið hið ákjósanlegasta í íslenskri skólasögu, en það er annað mál.

No related posts.

Siðrof
Með lögum skal land byggja en með ólögum eyða.

Ég get ekki réttlætt valdbeitingu gegn valdstjórninni (lögreglunni) með nokkru móti. Til þess hef ég starfað of náið með lögreglumönnum í gegnum tíðina. Ég veit ekki hvernig stendur á því að ungur maður náði að bíta lögreglumann, þegar hann var tekinn fyrir húsbrot í kjölfarið á mótmælum á síðasta ári. Ég ætla ekki að afsaka það bit, en bendi á að verði þessi ungi maður sakfelldur fyrir brotið, er hætt við að hann geti ekki orðið prestur, lögfræðingur eða læknir, sé hann nú námsmaður í háskóla og stundi hann þau fög. Afleiðingarnar eru því nokkrar fyrir hann, verði hann fyrir fullum þunga laganna.

Ég get ekki heldur með nokkru móti skilið, hvernig einstaklingur sem setur fyrirtæki og samfélag í margra milljarða króna þrot, er treyst til að halda áfram að reka téð fyrirtæki. Ég skil heldur ekki hvernig stendur á því að nú er rokið til að ákæra fyrir húsbrot, en lítið fer fyrir frystingu eigna þeirra sem grunaðir eru að hafa tæmt bankana og fyrirtækin til að skara að eigin köku.

Ég á satt að segja erfitt með að sjá það hvers vegna ég ætti sem kennari að hvetja nemendur mína að verða góðir og gegnir þjóðfélagsþegnar, ef siðrofið sem nú er að þroskast, verður varanlegt. Góðir samfélagsþegnar verða nefnilega undir í snákapyttinum sem íslenskt samfélag hefur alið undirfarin ár.

Ég get ekki réttlætt ofbeldi gegn lögreglunni. En það er siðlaust af stjórnvöldum að beita lögreglunni og ákæruvaldinu af hörku gegn mótmælendum meðan þeir sem ollu stjarnfræðilegum skaða fá að sjá silkihanskana. Slík stjórnvöld verða að víkja, því að þau leiða til afsiðunar þjóðarinnar og upplausn samfélagsins.

No related posts.

Gerðu það bara!
Árni Svanur á Parsprima kallar þetta beitt. Sammála. Einhvern veginn finnst mér mörg okkar vandamála verða að lúxusvandamálum í samanburði við þetta.

Fyrir nokkrum áratugum bjó ég í Strassborg í Frakklandi. Hinu megin við Rínarfljót er borgin Offenburg, sem var iðnaðarborg á sínum tíma. Á 19. öldinni var aðbúnaður verkamanna þvílíkur, að menn átu hunda og bjuggu í hreysum. Barnavinna var þekkt, eins og á Íslandi líka. Oliver Twist átti sér þjáningabræður víða um heim.

Leiðin til háþróaðrar iðnvæðingar er þyrnum stráð. Margir þeirra eru undir lögaldri. Að þessu sögðu sé ég ekki, hvernig stórfyrirtæki sem markaðssetja vörur sínar þar sem mannréttindi eru virt, geti með nokkru móti réttlætt það að selja hér vöru sem framleidd er af börnum.

No related posts.

Bjargað úr rústum
<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/jBxj1t1FnRw&hl=en_US&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/jBxj1t1FnRw&hl=en_US&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Rúmlega tveggja mínútna löng mynd af íslensku rústabjörgunarsveitinni að bjarga haítíska konu, í boði AP fréttaveitunnar á YouTube.

No related posts.

Skór
Ég er ekki mikið fyrir að auglýsa söluvefi annarra. En nú halda mig engin bönd. Brooks Brothers (http://brookbrothers.com) í NYC hefur þennan líka fína vef með karlmannaskóm. Einnig má finna kvenskó þarna …

No related posts.

Skýrt val
Mörður Árnason hittir naglann á höfuðið að mínu mati í bloggfærslu í dag:

Kosningin snýst um ákvörðun alþingis frá 29. desember. Hún snýst um það að taka ábyrgð og vinna áfram að endurreisn í samfélaginu – með því að ljúka Icesave-málinu – eða hefja á ný erfiða milliríkjadeilu með gríðarlegum fórnarkostnaði án nokkurrar vonar um betri árangur en í júní og ágúst.

Ég vona að þetta sé ranglega ályktað, fyrir hönd okkar allra. Er hræddur um að það sé tálvon.

Related posts:

Ekki hægt að taka aðra ákvörðun – mbl.is

Timburkirkja
Íslensku timburkirkjurnar eru dálítið sér á báti í kristninni. Bæði er það af því að þær eru úr timbri en ekki steini og af því hve litlar þær eru. Þær bergmála  tíma skorts og nægjusemi. Á tímum þar sem trúræknin var mikil á heimilum og húslestrar viðhafðir á kvöldin, gátu þær ekki rúmað nema hluta safnaðar. Eðlilegt var að einhverjir sóttu messu af hverjum bæ, en ekki allir. Ekki einu sinni á jólunum, eins og sumar þjóðsögurnar bera vitni um. Sumstaðar var það einnig svo, að fólk tiltekinna bæja sótti ekki kirkju nema ákveðna messudaga.

Þannig var til að mynda á Vattarnesi við Reyðarfjörð. Maður sem hafði alist þar upp kvartaði eitt sinn við mig að prestar á uppvaxtarárum hans hefðu varla rætt um neitt nema Heilagan anda í messum. Ég spurði á móti hvenær hann hefði farið í kirkju sem barn. Á Hvítasunnu, svaraði hann, því þá var kirkjuferð á bænum.

Slíkt fólk þarf ekki kirkjur dags daglega heldur notar þær til hátíðarbrigða. Þegar kirkja brennur, eins og Krísuvíkurkirkja gerði í nótt, brennur dálítið af menningararfinum. Dálítið minnismerki um tíma sem krafði mikils af þeim sem þá lifðu. Fólkið sem reisti þessar kirkjur voru menn sem höfðu ekki mikinn efnivið til að vinna úr og ef þeir fengu greitt fyrir var það oft í byggingarefnum eða mat. Samt kunnu þeir skil á gullinsniði, pí og gátu skreytt það sem þeir skiluðu af sér.

Ólíkt öðrum byggingarmeisturum, skilja þeir lítið eftir sig þegar verk þeirra eru brunnin. Enn er hægt að sjá undirstöður Jeríkó, en timburkirkjan í Krísuvík mun ekki skilja mikið eftir sig, nú þegar hún er farin.

Ég hygg að Íslendingar hafi lært það af þessum litlu kirkjum sínum, að sinna andlegri uppbyggingu sjálfir, en bíða ekki eftir prestinum og alls ekki eftir næstu messu með það. Enda voru menn læsir, lásu postillur og prédikanir málsmetandi biskupa og presta fram eftir öldum. Þegar presturinn húsvitjaði, skráði hann um læsi og hve vel ungviðið hafði lært um kristindóm á bænum. Kenndi varla sjálfur nema fermingarkverið. Allt annað var í höndum almennings.

Kirkjuhúsin rísa og kirkjurnar brenna, fjúka eða brotna með tímanum. Eftir stendur samfélagið sem byggði þær. Eða flyst á brott.

No related posts.

Kynslóðir koma og fara
Henrý Þór hittir naglann á hausinn í dag! Þetta er svo satt að mér er eiginlega illt.

No related posts.