Völsungasaga (hljóðbók á ensku)

Á Archive.org eru ekki eingöngu kvikmyndir heldur líka annað efni, sem hægt er að hlusta á og sækja án þess að brjóta lög eða borga fyrir. Í stað þess að bjóða upp á kvikmynd þennan sunnudag, býð ég upp á upplestur Völsungasögu (fyrsta hluta) á prýðilegri ensku. Allan textann má hlusta á í straumi hér og sækja hann sem mp3 hér.

Fleiri hljóðbækur og lesin ljóð má finna hér. Hljóðbókin, eða það að taka þátt í að byggja upp hljóðbókasafn ætti að vera hluti af skólastarfi. Gefa nemendum, sem hafa þroska til þess færi á að lesa inn á tölvu það sem þau fást við og gefa síðan almennum svæðum skrárnar, þannig að hægt verði að hlusta á sögur, ljóð og efni almenns eðlis af tónhlöðum eða símum sem ráða við það.

Tagged with:
 

Photoshop anno 1875

1875 - ljósmyndagaldurFengið á Flickr Commons. Næsti bær við Commons svæði Wikipediu.

Once Upon a Time in the West

Classic Cinema Online er vefur sem tekur saman gamlar bíómyndir á Google Video, flokkar og gerir aðgengilegar. Ég setti inn Once Upon a Time in the West (Leone) hér í gluggann við hliðina á. Myndin fær að vera í eina viku þar, en það má einnig sjá hana hér. Ég geri ráð fyrir að hún megi birtast hér, þar sem hún hefur fengið að standa óhreyfð í tvö ár á Google Video.

Tagged with:
 

Ljósmyndir á tíma

Snorri Björnsson heitir ungur maður, sem tekur myndir. Morgunblaðið fjallaði um áhugamál hans á vefnum í dag. Myndskeiðið, sem sjá má hér fyrir ofan, fékk mig til að hugsa. Hvað ef ég notaði þessa aðferð til kennslu, þetta, að taka myndir á tíma? Bæði mætti nota þetta til stjörnuskoðunar, umferðarfræðslu og ég veit ekki hvað.

Tagged with: