tolvari.net » Opinn hugbúnaður

Saga, mynd og kennsla
Listin að segja sögu tekur á sig ýmsar myndir, sérstaklega þegar nemendum er gefinn laus taumur. Hér vil ég segja frá dálitlu verkefni sem 5. bekkingar unnu hjá mér í fyrra. Verkefnið tók 10 – 20 kennslustundir, þá með því að nokkrir nemendur kusu að myndgera fleiri en eina sögu.

engill á teiknuðum bakgrunni (CF setti saman)

Að undangenginni innlögn um handritagerð og söguspjöld (ágætt tól til að hjálpa sér við þetta er Celtx, http://www.celtx.com). Ungir nemendur vinna best á útprentuð söguspjöld, sem þeir nota til að auðvelda sér myndatökur.

Nemendur sóttu sér nokkrar sögur á Netútgáfunni (http://www.snerpa.is/net) og fluttu í ritvinnsluforrit. Hér er um að ræða texta á opnu og aðgengilegu rými, textar sem ekki eru lengur höfundaréttarvarðir. Nemendur lærðu að búa til fyrirsagnir, efnisyfirlit og blaðsíðutal. Lásu síðan sögur sínar af skjá. Við lestur komust sumir að því að þeir skildu ekki öll orðin. Þá var gripið til netorðabókar (http://www.snara.is), orðunum flett upp og orðin ásamt útskýringum komið fyrir í neðanmálsgrein. Á þessum stað var verkefnið vistað og gætt að því að útlitshönnun for eingöngu fram með því að notaðir voru stílar (styles and formating).

teiknað og ljósmyndað í bland (nemandaverk)

Næsta skref var að nemendur teiknuðu myndir við sögur sínar í glærugerðarforriti (PowerPoint, OpenOffice Impress, Keynote). Síðan byrjaði fjörið. Nemendur komu með búninga í skólann og skipuðu félögum sínum í hlutverk. Ljósmynduðu síðan hvert annað í hópatriðum og einstaklingsatriðum með stafrænum myndavélum. Þessi þáttur gat tekið langan tíma. Nemendur skildu stundum ekki að þeir höfðu ekki ótakmarkaðan aðgang að hver öðrum, að þeir þurftu að taka stærstu hópatriðin þannig að allir voru til í réttum búningum á réttum tímum…

Þegar myndir voru komnar í vél, voru þær fluttar á sameiginleg svæði á innra neti og síðan í glærugerðarforrit. Þá tók við einstaklingsvinna, þar sem nemendur settu sögu, samtöl, hugsanir inn á einstakar glærur. Sumir nemendur fundu það út að þá vantaði myndir þegar hér var komið sögu og fóru aftur og tóku myndir.

Nokkrir voru svo hrifnir að þeir ákváðu að gera annað svona verkefni. Þá nemendur sá ég ekki í þrjá eða fjóra tíma samfleytt, en þegar þeir komu aftur, höfðu þeir á bilinu 50 – 80 myndir til að moða úr! Vitaskuld úr nýrri sögu.

Teiknað og ljósmyndað í bland (nemendaverk)

Þegar myndatökunni er lokið, er eftirleikurinn auðveldur. Nota má bestu myndir nemenda til að búa til teiknimyndir í myndvinnsluforritum eins og GIMP (http://gimp.org) sem er ókeypis og frjálst forrit. Þeir nemendur sem vilja, geta haldið áfram vinnu sinni heima, þar sem hver sem er getur hlaðið forritinu á hvaða tölvu sem er sér að kosnaðarlausu, löglega. Forritið styður við marglaga myndir og leyfir nákvæman útskurð einstakra hluta og skeytingu þeirra á annan bakgrunn.

Nokkrar góðar hugmyndir um hvernig breyta má ljósmyndum í teiknimyndir má finna hjá Melissu Clifton (http://www.melissaclifton.com). Dæmi um notkun þessarar tækni er pólítísk ádeila og spéspegill Henrý Þórs á http://pressan.is/Gulapressan og http://henrythor.blogspot.com.

No related posts.

Farandstónlist í skólann
Playing For Change | Song Around The World “Stand By Me” from Concord Music Group on Vimeo.

Ég held að hægt sé að gera svona að verkefni fyrir margmiðlunarhóp í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla. Mér sýnist maður þurfa eftirfarandi:

Tónlistarfólk

fartölvu, hljóðupptöku/klippiforrit (t.d. Audacity)

utanáliggjandi hljóðkort

lítinn mixer

míkrófóna og standa

vídeóupptökuvél

heyrnartól fyrir tónlistarfólkið

heyrnartól fyrir hljóðmann

aðgang að rafmagni

framlengingarsnúrur, fjöltengi, xlr snúrur o.s.frv.

Gleymi ég einhverju?

No related posts.

Saga og margmiðlun í skólastarfi
Digital storytelling presents a unique opportunity for students to acquire much more than new technology skills. It enables them to represent their voices in a manner rarely addressed by state and district curriculum while practicing the digital literacy skills that will be important to their 21st century futures. – Thomas Michael Banaszewski, 2005

Stafræn saga sameinar sjálfsævisöguna og tækni myndvinnslunnar, teikningar í tölvu, kvikmyndavinnslu, hljóðupptöku og vinnslu og getur farið út í prentvinnslu. Margmiðlun er safnhugtak mismunandi miðlunaraðferða.

Þessi færsla sameinar aðferð sögur og margmiðlunar. Notaður verður ókeypis og frjáls hugbúnaðar. Her er líka kennsluáætlun þriggja kennslustunda í námskeiðinu Nám og kennsla á netinu, vorið 09 eða MEN018F-V09 við Háskóla Íslands 9. febrúar milli 9 og 16. Næstu daga bætast við bloggfærslur um glærugerð, ræðuhöld og um leikjaforritun, allt út frá sömu hugmynd. Að segja sögu.

Tilgangur þessarar kennslustundar er margþættur. Að kynnast vinnubrögðum í mynd-, tón- og kvikmyndavinnslu. Vinna með sögu, líka í þágu námsefnisgerðar. Kynnast opnum hugbúnaði. Kynnast eðlilegu verkferli í skapandi vinnu. Kynnast textasöfnum, myndasöfnum, tónsöfnum og teikningasöfnum og geti greint milli efnis sem er höfundavarið og þess sem nota má á grunni opinna hugverkaleyfa.

Dagskrá staðlotunnar

Glærusýning um verkferli tölvuunninar hönnunar.

Kynning forrita og verkferla – 45 mín

Sýnidæmi verða tekin upp með hjálp Camstudio, vistuð á sameiginlegu svæði. Nemendur mega nota upptökur til klippitilrauna og vista þær á netlæga þjónustu að eigin vali.

Tuxpaint og notkun með börnum – teiknum þrívíða teikningu

Inkskape og vektorateikning – http://taeknimennt.net/index.php?title=Inkscape

Paint.net og Gimp, ljósmyndagaldrar – klippum út hlut og setjum á annan bakgrunn

Moviemaker eða iMovie – setjum saman myndasýningu úr ljósmyndum eða kvikmyndabútum og bætum við eigin hljóðum, tónlist eða tali. Hvorugt er vitaskuld “frjáls og opinn hugbúnaður”, en hann má finna http://tv.isg.si/site/?q=node/873 og http://www.junauza.com/2008/02/freeopen-source-video-editing-software.html (vefleit > open source video editor)

Scribus – setjum myndir og texta í bókasíðu eða plakat, tilbúið til prentunar í prentsmiðju

Gagnasöfn á netinu (myndir, textar, hljóð, myndbrot og kvikmyndir)

Verkefnavinna – 90 mín

1. Hópar myndaðir um verkefnin. Í hverjum hópi ætti að vera a.m.k. einn einstaklingur sem er vanur að vinna með kvikmynd, hljóð eða myndvinnslu, allt eftir því hvort hópurinn kýs að vinna kvikmyndaverkefni eða myndverkefni.

2. Viðfangsefni valið úr sögum geymdum á netinu, http://snerpa.is/net eða hliðstæð söfn á erlendum tungumálum.

3. Unnið úr viðfangsefni í söguspjald og hliðstæð verkfæri. Nota má glærusýningarforrit eða einföld teikniforrit ef vill. Blað og blýjantur er þó hugsanlega fljótlegri miðill. (takk Gunnar M. Andrésson)

4. Forrit og vinnuferli fara eftir eðli verkefnisins.

Myndvinnsla og myndskreyttur texti notast við OpenOffice Impress eða söguspjald í pappírsformi ásamt einföldu teikniforriti s.s. TuxPaint eða Paint.net.

Fundið myndefni á ljósmynda eða teiknivefjum (http://flickr.com eða http://openclipart.org, ath að myndefni þarf að vera a.m.k. -cc- merkt).

Teikningar unnar í vektorforritum með Inkscape eða punktateikningum með Paint.net eða hliðstæðum

Ljósmyndir teknar að vild og lagaðar að sögunni. Ljósmyndavinnsla með Paint.net eða Gimp

Vista allt í eina möppu á C:/ eða skjáborð (ef unnið er í skólatölvu)

Ljósmyndum og teikningum má blanda saman. Gæta samræmis í upplausn ljósmynda. Paint.net eða Gimp, Inkscape.

Flutt á heimasíðu með hjálp veftóla eða á blogg og/eða í rafbók/prentað form með Scribus

Kvikmynd eða fræðslumynd*) byrjar sem handrit og síðan söguspjald, sbr. leiðbeiningar í lið 3 og 4.

Kvikmynd tekin upp eða skjákvikmynd búin til með hjálp CamStudio (Win) eða Snapz X Pro (Mac). Einnig má finna kvikmyndabrot með hjálp http://search.creativcommons.org eða á http://flickr.com, gæta að höfundarétti.

Mynd klippt, titlar, skiptingar milli atriða, Moviemaker (Win) eða iMovie (Mac)

Hljóð tekið upp og skeytt saman við mynd, Audacity

Fundin tónlist af http://opsound.org og myndir af http://flickr.com eða http://openclipart.org ef það passar í verkefnið.

Vista allt í eina möppu á C:\ eða skjáborð (ef unnið er í skólatölvu)

Hljóð skeytt að kvikmynd, hækkað og lækkað eftir þörfum.

Flutt út sem MPEG, Flash, Avi, QuickTime eða annað stafrænt form (eftir þörfum) eða beint á vef á borð við Youtube, Vimeo, Google Player, Kalthura, TeacherTube eða hliðstæða þjónustu og vafið í eigið blogg eða sérstaka síðu.

Sambland þessa má ná með því að taka upp leiklestur má nýta myndefnið í kyrrmyndasýningu. Audacity, Moviemaker eða iMovie ásamt tónlist af http://opsound.org

Eftir staðlotu

frekari vinnsla, svo og eftirfarandi liðir:

5. Prufusýning

t.d. á staðlotu í apríl, í smiðjutímum, á bloggi nemanda. Athugasemdir samnemenda verða að vera uppbyggilegar og “to the point”.

6. Endurvinnsla

á grunni athugasemda en sjálfstæð vinnubrögð nauðsynleg!

7. Frumsýning og innlögn

Skilaverkefni skv. námskeiðslýsingu sem hluti lokaskila.

* Hvernig getur fræðslumynd orðið að sögu? Skoðaðu aðferðir David Attenborough í gerð fræðslumynda.

Heimildir

Banaszewski, Thomas Michael, Digital Storytelling: Suppporting Digital Literacy in Grades 4 – 12, Georgia Institute of Technology 2005, sótt 8. 2. 2009 á http://etd.gatech.edu/theses/available/etd-04182005-170416

Barrett, Helen, Digital Storytelling, http://helenbarrett.com/digistory/index.html, sótt 8. 2. 2009

Educational Uses of Digital Storytelling (háskólinn í Houston) – http://digitalstorytelling.coe.uh.edu

One Thousand and One Flat World Tales Project Page, 2007 – 2008, http://burell9english.wikispaces.com/ sótt 8. 2. 2008 – enskuverkefni 9. bekkjar þriggja skóla

No related posts.

uStream.tv og útsendingar kennsluefnis
Tæknismiðja dagsins 31. janúar 2009 var áhugaverð um margt fyrir mig sem kennara. Sumt gekk eins og í sögu, annað mistókst hrapalega. Sumt var eins og í var lagt. Neyðarlegast var að ég gleymdi að ýta á  fyrr en í miðjum fyrri tíma og að skrúfa frá hljóði í upphafi þess seinni

Ég mætti snemma, í þetta sinn með tvo condensermíkrófóna, s.s. hljóðnema sem þarfnast straums frá hljóðborði til að nema hljóð úr fjarska. Ég hafði lítið hljóðborð, tvær vefmyndavélar og kynstrin öll af snúrum. Míkrófónar fóru í hljóðborðið og hljóðið úr því beint í tölvuna, þar sem míkrófónninn fer venjulega (bleik innstunga). Þetta gekk en voru fyrstu mistökin sem ég gerði.

Ég var búinn að setja upp ManyCam til að skipta á milli myndavélar og skjáborðs tölvunnar. Þetta gekk eins og í sögu. Ég gat því ráðið því á hvað nemendur, sem voru fjarri horfðu á meðan ég kenndi. Þetta voru önnur mistökin mín.

Ég hafði látið setja iTalc inn á allar tölvur og kennartölvan gat því tengst við alla sem skráðu sig í tölvur í stofunni (nema þau sem komu með eigin tölvur). Þetta gerði mér kleift að veita þeim sem lentu í vanda aðstoð með því að varpa skjáborði þeirra á tjaldið og beina þeim á réttar brautir. Þetta voru þriðju mistökin mín.

Ég hafði með mér lampa, sem lýsti andliti mínu meðan slökkt var á ljósum. Fólk sá betur á tjaldið. Þetta voru engin mistök. Ég hafði sett upp kennslustundina á heimasíðuna með útendingunni, þannig að fólk gat séð hvað var á dagskrá og hélt tímaáætlun með smá frávikum. Þetta fannst mér ganga vel.

Mistök 1 – 3 fólust í eftirfarandi:

Ef hljóð er tekið beint úr hljóðborði og sett í tölvu þarf örgjörvi tölvunnar að vinna úr hliðrænu hljóðmerki og breyta því í stafrænt, áður en það er sent út í hátalarana eða um internetið til áhorfenda.

ManyCam styður við skjáupplausnina 640 * 380 eða svo. Allt of lítið fyrir skjákennslu, þótt það nægi fyrir talandi hausa. Hér hefði Dimdim líkast til verið betra.

Útsending á mynd og hljóði tekur mikið til sín af vinnsluminni og vinnslugetu. Það er því vafasöm æfing að ætla sér að vafra á netinu og fylgjast með 13 tölvum á sama tíma. Ég hef líkast til kaffært fleiri en nemendur með vinnu í dag. Því fór sem fór, útsendingin varð slitrótt og fjölgaði um helming í hléinu, þar sem nemendur komu í skólann til að taka þátt.

Leiðir til úrbóta

munu felast í því að koma með utanáliggjandi hljóðkort til að sjá um að breyta hliðrænu hljóði í stafrænt og skila því í tölvuna.

Undirbúa heimasíður betur undir að fólk sæki þangað kennsluskjöl, ef ég held mér við uStream.tv. Annars skoða annar fjarfundarbúnað, s.s. Dimdim.

Fá aðstoðarmann til að sjá um hljóð og myndeffecta.

Dagskrá tæknismiðjunnar 31. 1. 2009

Dagskrá smiðjutímans

10 – 10.45 – kynningar og tæknileg atriði

10.45 – 11 – hlé

11 – 11.45 – umræður, samvinna, notkun tóla æfð

11.45 – 12 – óleystar spurningar skráðar í blakk, blogg, google docs o.s.frv.

Skilaverkefni – 9. febrúar 2009

Grein í íslensku Wikipedia – ákveða greinina og skrifa nokkrar línur

Wikilexía í wiki.khi.is – ákveða lexíuna, skrifa inngang og skrifa nokkrar spurningar

Efnisvefur um sjálfvalið efni – ákveða efnið og byrja á því (nokkrar línur)

Vefþjónusta – 5 færslur í Twitter og del.icio.us; skráning í myendnoteweb.com; þátttaka í namogkennsla.ning.com

Sækja og innsetja Inkscape, Paint.net og Tuxpaint (nota Google til að finna)

Tækni, tól og verklag

uStream.tv kynning og létt prufa. Nemendum boðið að vera co-host, ef vilja, en gekk ekki eftir, ástæður skoðaðar síðar.

ManyCam/Camtwist kynning

iTalc kynning

RSS Feedreader (t.d. Google Reader, NewsGator, BloggGáttin) kynning

Personal Learning Networks – Sue Waters

Spurt og svarað úr veruleikanum

Fyrst nokkur dæmi um notkun og misnotkun, munur á kenningu og reynd

skráning í vefþjónustu “í beinni”, nánar hér

eldveggir, websense og kerfislagg

nemendur fatta það – uppgötva veftól og nota þau

Grundvallarafstaða til náms og kennslu með tilkomu upplýsingamiðla og samvinnu á netinu

námsbókin almáttuga úrelt – leita að efni á Wikipedia (t.d. náttúrufræði, copy paste vs. hvar eru bestu upplýsingarnar og af hverju eru þær góðar?)

nemendur búa til eigin námsbækur, efnisveitur, í samvinnu við kennara (t.d. með hjálp WordPress bloggs eða Wikivefja – sbr. http://www.youtube.com/watch?v=hmkqcp11pHM, http://kvikmyndaborg.wikidot.com)

nemendur geta mótað námskeiðið meir en áður og með formlegri hætti (t.d. með nemendabloggi, samfélagsvef á borð við Ning eða Wetpaint/Wikispaces (Hróbjartur Árnason, Chris Burrell)

Að lokum: Vill einhver prófa og blogga um

Glogster.com

playauditorium.com

Tux4Math Command (leita í Google)

Flickr, CoolIris viðbótin fyrir Firefox og RSS straumar úr Flickr í WordPress

WordPress hjálp á Edublog – http://theedublogger.edublogs.org/getting-started-with-edublogs/

No related posts.

Tæknismiðjan 31.1.09 – bein útsending kl. 10 – 12
Ég ákvað að auglýsa þetta hér á blogginu, og opna þar með fyrir víðari hópi áheyrenda sem geta litið inn og tekið þátt í gegnum netið. Með því að fara á ustream.tv/channel/taeknismidjan má einnig koma fyrirspurnum til þátttakenda í gegnum textaspjall. Útsendingin verður tekin upp.

No related posts.

Tölvustudd hugarleikfimi
Stundum reka á fjörur manns tæki og tól sem eru þess virði að þau séu skoðuð og leikið við þau. Mig langar að vekja athygli á nokkrum þeirra hér. Þau eiga það sameiginlegt að vera ókeypis og nothæf í Linux, Mac OS X og Windows.

Samansafn þrauta er að finna á http://www.gamesforthebrain.com/. Bæði eru þar púsl, skák, orðaleikir, myndaleikir, stærðfræði og rökþrautir sem ættu að gleðja leikandann betur en margt annað.

Af sömu tegund en samt allt öðruvísi er leikurinn www.playauditorium.com sem reynir á rýmisgreind og verðlaunar með fallegu hljóði sem getur aukið tóngreindina. Engin ein rétt lausn við hverju dæmi. Skjáskotið hér til hliðar er ú Auditorium.

Tux4kids hefur tvö forrit sem reyna á vélritun og stærðfræði. Þetta er ókeypis og opinn hugbúnaður, sniðinn að því að auka minni, fingrasetningu, stærðfræði, hugarreikning. Hægt er að sækja þau á http://alioth.debian.org/frs/?group_id=31080. Mér finnst galli að ekki er búið að íslenska þau.

Tuxpaint er frændi ofangreindra forrita og er teikniforrit fyrir yngstu stig grunnskólans, einnig opinn og ókeypis hugbúnaður. Búið er að íslenska hugbúnaðinn. Hægt er að sækja hann á www.tuxpaint.org. Leiðbeiningar eru að finna á http://wiki.khi.is/index.php/Tuxpaint.

Þrjú forritunarmál eru þess virði að þau fái útbreiðslu í skólakerfinu. Scratch, sem var hannað fyrir bandarísk leikskólabörn en er hægt að nota upp eftir öllum skólastigum. Það er vel stutt af netsamfélagi og bókum. Linuxútgáfu er hægt að nálgast í gegnum krókaleiðir. Hægt að sækja á http://skratch.mit.edu.

Alice.org styður við þrívíða hönnun og hentar til sagnagerðar og tölvuleikja. Mun vinna með tölvumódel úr Sims leikjunum í náinni framtíð og hentar sem brú yfir í Java forritunarmálið. Vel stutt bókum og kennslurannsóknum.

ADRIFT hentar til ævintýragerðar án mynda. Sú aðferðafræði ætti að henta vel í tungumálanámi og til að auðvelda nemendum að búa til og þróa sögu- og frásagnargáfur sínar. Gert fyrir Windows eingöngu og kostar lítilræði að eignast útgáfu, sem styður “ótakmarkaða” lengd tölvuleikja.

Related posts:

Öruggir flash leikir

Útrás í almannaeign
Nei, hér er ekki um okkar íslensku útrás að ræða heldur fyrirbærið “Public Domain” sem birtist m.a. í fyrirbærum eins og Wikipediu, leitarvél Creative Commons, forritabankanum SourceForge og hugverkum sem má nota, breyta, gefa, dreifa, aðlaga og jafnvel selja í nýjum umbúðum, ef því er að skipta. Nú, þegar skólakerfið verður sannarlega svelt um milljónir og jafnvel milljarða á komandi árum, verður að hugsa kennslu, tækni og tölvumál upp á nýjan leik. Ríkið hefur þegar mótað sér stefnu varðandi opinn hugbúnað og mig langar að prjóna við þær pælingar.

1. Hægt er að nýta tölvubúnað skólans mun lengur en margir ætla, t.d. með því að færa eldri tölvur af Windows yfir á Edubuntu, sem er Ubuntu Linux með kennsluviðbót. Ég hef verið að prófa sæmilega útbúna tölvu frá 2001 með því kerfi uppsettu í skólanum sem ég kenni og virðist hún vinna jafnhratt og tölva keypt 2006. Meðal forrita sem fylgja Edubuntu útgáfunni eru: Openoffice, Scribus, Gimp, Inkscape og fleiri nauðsynleg tól, ótal kennsluforrit auk þess sem veiruvarnarforrit er óþarft. Hliðstæð tölva í Windows þarf að hafa Adobe Creative Suite og Microsoft Office Pro, veiruvörn, pakki sem kostar hálfa milljón út úr búð – ef nemandi vildi geta unnið í þessum forritum heima hjá sér. Ég veit ekki hvað það kostar menntakerfið í Reykjavík, en Línuxpakkinn er ókeypis og aðgengilegur.

2. Notkun dýrra forritapakka og vanhugsuð notkun margmiðlunarefnis í skólakerfinu ýtir undir hugverkastuld. Þurfi ég að nota Adobe Photoshop í skólanum til að vinna ljósmynd og á ekki þann pakka heima (kostar um 100þús), þá er freistandi að stela honum á netinu. Því er betra að venja nemendur við notkun ókeypis hugbúnaðar strax á grunnskólastíginu og hugsa ekki um þessi dýru, keyptu og lokuðu fyrr en í háskóla í fyrsta lagi.

Google - Nákvæm leit

3. Þótt það sé leyfilegt að nota hvaða hugverk í skólastarfi, svo framarlega sem skólinn á löglegt eintak þess, má ekki sýna verk sem innihalda þau utan skólans. Þarmeð má ekki sýna þau á heimasíðu eða á skólaskemmtun þar sem aðrir en þeir sem tilheyra skólanum koma á. Því er betra að skólinn nýti sér ekki leitarvélar eins og Google umhugsunarlaust (hægt er að velja “nákvæmari leit” > “Notkunarréttur” sbr. myndin hér til hliðar). Þetta krefst auðvitað vandaðra vinnubragða og nákvæmrar heimildarfærslu. Ég hugsa samt að krakkar frá og með 6. bekk ættu að geta ráðið við að vinna á þennan hátt, sérstaklega ef kennari leyfir þeim eingöngu að nota Google á ofangreindan hátt eða notar leitarvél Creative Commons fyrir allt sem finna á.

Mig langar að lokum að benda á bók James Boyle,  The Public Domain sem ókeypis en verðmætt innlegg í umræðuna um hvað má og hvað má ekki, hvað er eðlileg notkun hugverka og hvað óeðlileg. Bókin er sjálf varin Creative Commons hugverkarétti og er tekið við frjálsum framlögum vegna lesturs og notkunar.

Einskonar eftirmáli

Hvernig er hægt að hafa í grautinn ef maður gefur hugverk sín? Hvernig eru hugbúnaður á borð við OpenOffice fjármagnaður? Frjáls framlög, góður bakhjarl (t.d. í stöndugu fyrirtæki á borð við Sun) eða með þvi að höfundur fái mörg tækifæri til fyrirlestra, kennslu, ráðgjafar eða önnur, hliðstæð störf. Höfundar vinsælla forrita selja boli, bolla, húfur. Loks geta þeir sem borga fyrir opinn, ókeypis hugbúnað komið óskafídusum sínum ofar á “to-do” lista forritaranna.

Áður birt á carlos.blog.is

Related posts:

Google gleypir

Saga, ræða og glærur