Það er e.t.v. til marks um tíðarandann, að væntingar um nám hafa snúist upp í andhverfu sína. Miðað við það, er tilgangslaust að bregðast við siðferðilegu hruni bankakerfis og í stjórnmálum með aukinni kennslu í siðfræði. Nær væri að líta það hvernig fólk tjáir sig, hvort það notar germynd eða þolmynd um alla hluti. Málið er nefnilega, að “það lendir enginn í vondum einkunnum”, og slæmur árangur í prófum er yfirleitt ekki öðrum um að kenna en bara mér. Ég klúðraði (germynd), ég lenti ekki í klúðri (þolmynd).
Related posts:
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
