Diskó 6. bekkur – Grooveshark

On Mánudagur, 31. maí 2010, in Almenningur, Fróðlegt, Margmiðlun, by Carlos

Settum saman þennan löglega lagalista fyrir diskó 6. bekkjar. Grooveshark er þjónusta þar sem hægt er að hlaða upp lögum sem maður á, hefur keypt eða fengið löglega gefins. Allir sem vilja geta síðan hlustað á hvar sem er og hvenær sem er (nettenging!). Viðmótið er eins og iTunes og afar þæginlegt. Hægt er að velja kostaða þjónustu ($30 á ári) sem gefur aukin þægindi. Með þessu móti fá allir sín stefgjöld eftir því hvað er spilað og hve oft.



Lögin voru valin á lýðræðislegan hátt. Krakkarnir fengu fyrirmæli um að skrifa niður 6 lög hvert ás. flytjanda og fulltrúar bekkjanna komu lögunum til mín og sáu til þess að rétt lög lentu á lista. Sum íslensk lög voru ekki komin á vefsíðuna, en ég sagði þeim að þau gætu hlaðið þeim upp, ef þau ættu þau. Síðan myndi þjónustan sjá um að listamenn fengju greitt.

Spunnust nokkrar umræður um kosti þess að sækja tónlist í gegnum Torrent, en þau voru nokkur sem vildu skoða þessa þjónustu nánar. Ekki var verra að þetta er löglegt og aðgengilegt.

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

Tagged with:
 

Comments are closed.