Á Archive.org eru ekki eingöngu kvikmyndir heldur líka annað efni, sem hægt er að hlusta á og sækja án þess að brjóta lög eða borga fyrir. Í stað þess að bjóða upp á kvikmynd þennan sunnudag, býð ég upp á upplestur Völsungasögu (fyrsta hluta) á prýðilegri ensku. Allan textann má hlusta á í straumi hér og sækja hann sem mp3 hér.
Fleiri hljóðbækur og lesin ljóð má finna hér. Hljóðbókin, eða það að taka þátt í að byggja upp hljóðbókasafn ætti að vera hluti af skólastarfi. Gefa nemendum, sem hafa þroska til þess færi á að lesa inn á tölvu það sem þau fást við og gefa síðan almennum svæðum skrárnar, þannig að hægt verði að hlusta á sögur, ljóð og efni almenns eðlis af tónhlöðum eða símum sem ráða við það.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.