Kennslutilraun: Ljóð og stafsetning

StafsetningVandinn við að kenna stafsetningu er að hún byggir á þekkingu orða. Ef nemandinn þekkir orðið, hvernig það lítur út, þá mun hann skrifa það rétt. Þetta á reyndar líka við um lestur, þekking orða er grunnur þess að lesturinn verði góður, nemandinn læs.

Ég ákvað að gera tilraun, nú þegar handboltinn gaf færi á. Ég notaði þjóðsönginn sem upplestraræfingu. Lagði áherslu á ljóðlínuna, greinaskilin, punkta og kommur. Lagði áherslur á tvær stafsetningareglur og gaf nemendum færi á að rifja upp reglurnar eftir upplesturinn og leiðrétta hjá sér textann, ef þeir þurftu. Síðan skrifaði ég textann rétt upp á töflu og þá fóru nemendur aftur yfir hjá sér og töldu villur sínar.

Árangurinn lét ekki á sér standa. Meira að segja þeir nemendur sem stafsetja verst höfðu fáar villur. Nemendurnir sýndu textanum tilhlýðilega virðingu og einhverjir sungu hann meira að segja. Einn eða tveir ákváðu að hreinrita hann, vildu eiga hann fallegan.

Ég ætla að fylgja þessu eftir með því að lesa fleiri ljóð sem stafsetningaræfingu. Bjóða nemendum að koma með uppáhaldstexta og nota þá líka. Smám saman verður til ljóðabók krakkanna sem þeir binda síðan inn og skreyta, t.d. með ljósmyndum og teikningum sínum.

Þessi hugmynd leyfir kennara að samþætta bókmenntir, lesskilning, skrift, stafsetningu og málfræði, svo eitthvað sé nefnt. Aðferðin býður upp á spretti í túlkun og samtali um merkingu.

Myndin er fengin með hjálp Wordle.

Related posts:

  1. Þýska án námsbóka
  2. Saga, mynd og kennsla

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

Comments are closed.