Google Docs í stað OpenOffice!

On Miðvikudagur, 10. febrúar 2010, in Fróðlegt, Internet, Tölvun, by Carlos

Nýja Ubuntu stýrikerfið fyrir nettölvur (10.04) mun nota Google Docs í stað OpenOffice skrifstofuvöndulsins. Það sýnir að netlæg vinnsla og geymsla gagna sækir á og að Google skrifstofuvöndullinn er orðinn nógu góður til að vera eini skrifstofuvöndullinn sem tiltekinn hópur notenda hefur aðgang að “út úr kassanum”.

Fyrir skóla getur þetta þýtt að skólatölvur þurfa aðeins að hafa vafra innsettan til að búa til skrifstofuskjöl og sameiginleg skjöl skólans geta verið skilgreind í hópum sem Google geymir fyrir skólann. Það getur sparað skólanum að halda úti eins og einum skráarþjóni. Ekki er ónýtt að Google Docs getur nú geymt hverskonar skjöl fyrir notendur, ekki aðeins skrifstofuskjöl heldur líka myndir, .pdf skjöl og annað sérhæfðara.

Meira um þetta hér:

http://digitizor.com/2010/02/05/openoffice-dropped-from-ubuntu-netbook-edition-10-04/

Related posts:

  1. Google gleypir
  2. Útrás í almannaeign

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

Tagged with:
 

Comments are closed.