Siðrof

On Miðvikudagur, 27. janúar 2010, in Heimur, Stjórnmál, by Carlos

Með lögum skal land byggja en með ólögum eyða.

Ég get ekki réttlætt valdbeitingu gegn valdstjórninni (lögreglunni) með nokkru móti. Til þess hef ég starfað of náið með lögreglumönnum í gegnum tíðina. Ég veit ekki hvernig stendur á því að ungur maður náði að bíta lögreglumann, þegar hann var tekinn fyrir húsbrot í kjölfarið á mótmælum á síðasta ári. Ég ætla ekki að afsaka það bit, en bendi á að verði þessi ungi maður sakfelldur fyrir brotið, er hætt við að hann geti ekki orðið prestur, lögfræðingur eða læknir, sé hann nú námsmaður í háskóla og stundi hann þau fög. Afleiðingarnar eru því nokkrar fyrir hann, verði hann fyrir fullum þunga laganna.

Ég get ekki heldur með nokkru móti skilið, hvernig einstaklingur sem setur fyrirtæki og samfélag í margra milljarða króna þrot, er treyst til að halda áfram að reka téð fyrirtæki. Ég skil heldur ekki hvernig stendur á því að nú er rokið til að ákæra fyrir húsbrot, en lítið fer fyrir frystingu eigna þeirra sem grunaðir eru að hafa tæmt bankana og fyrirtækin til að skara að eigin köku.

Ég á satt að segja erfitt með að sjá það hvers vegna ég ætti sem kennari að hvetja nemendur mína að verða góðir og gegnir þjóðfélagsþegnar, ef siðrofið sem nú er að þroskast, verður varanlegt. Góðir samfélagsþegnar verða nefnilega undir í snákapyttinum sem íslenskt samfélag hefur alið undirfarin ár.

Ég get ekki réttlætt ofbeldi gegn lögreglunni. En það er siðlaust af stjórnvöldum að beita lögreglunni og ákæruvaldinu af hörku gegn mótmælendum meðan þeir sem ollu stjarnfræðilegum skaða fá að sjá silkihanskana. Slík stjórnvöld verða að víkja, því að þau leiða til afsiðunar þjóðarinnar og upplausn samfélagsins.

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.