Gerðu það bara!
Árni Svanur á Parsprima kallar þetta beitt. Sammála. Einhvern veginn finnst mér mörg okkar vandamála verða að lúxusvandamálum í samanburði við þetta.
Fyrir nokkrum áratugum bjó ég í Strassborg í Frakklandi. Hinu megin við Rínarfljót er borgin Offenburg, sem var iðnaðarborg á sínum tíma. Á 19. öldinni var aðbúnaður verkamanna þvílíkur, að menn átu hunda og bjuggu í hreysum. Barnavinna var þekkt, eins og á Íslandi líka. Oliver Twist átti sér þjáningabræður víða um heim.
Leiðin til háþróaðrar iðnvæðingar er þyrnum stráð. Margir þeirra eru undir lögaldri. Að þessu sögðu sé ég ekki, hvernig stórfyrirtæki sem markaðssetja vörur sínar þar sem mannréttindi eru virt, geti með nokkru móti réttlætt það að selja hér vöru sem framleidd er af börnum.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.