Eðlisfræði Avatar fyrir kennara

On Þriðjudagur, 19. janúar 2010, in Fróðlegt, Kennsluhugmyndir, Vinnan, by Carlos

Það er ekki oft að vísindaskáldsaga verður nógu vinsæl til að hægt er að nota hana í kennslu í grunnskóla. Ég held að Avatar sé ein þeirra. Persónurnar eru flottar, söguþráðurinn flækist ekki fyrir upplifuninni og mórallinn er heilbrigður: Mennska ofar græðgi.

Þar sem ég á að kenna bæði eðlis- og stjörnufræði í 6. bekk, ákvað ég að leita gagna um eðlis- og stjörnufræði Avatar. Þetta með fljótandi fjöllin, þyngdaraflið og segulmögnunina er ekki bara augnayndi heldur áskorun til kennara um að sýna hvernig þetta er hægt í kennslustofunni! Með því að tengja vona ég að krakkarnir verði til í að skoða eigið sólkerfi betur.

Færsla í Wikia svæði helgað Avatar, skoða hér. Pandorapedia er einnig komin á netið, skoða hér. Grein í Christian Science Monitor, skoða hér (28.12.2009). Í greininni er vísað í eftirfarandi bók, sem ég ætla að hafa til sýnis (brot) hér.

Related posts:

  1. GIMP – Kennslumyndbönd og staðlaðar (myndbreyttar) ímyndir fegurðar
  2. Þýska án námsbóka
  3. Tóbaksauglýsing – án reyks
  4. Vandi, lausn og nám

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

Tagged with:
 

One Response to Eðlisfræði Avatar fyrir kennara

  1. Ég þarf greinilega að fara að sjá þessa mynd. Láttu svo vita hvernig gengur að framkvæma þetta í kennslustofunni.