Wordle: þýskunámskeið

Eftir helgi hefst þriðja vikan í þýskuvali í Sunnulækjarskólanum. Skráðir eru tíu nemendur úr 9. bekk. Markmið kennslunnar eru einföld. Kynna fyrir þeim tungumálið og menningu þýskumælandi landa. Gera nemendum kleift að tjá sig um nauðsynlegustu málefni. Það sem er óvenjulegt er að við notumst ekki við námsbækur, enda nær kreppan líka til Árborgar og þetta mátti ekki kosta mikla peninga.

Ég lagði höfuðið í bleyti í haust og fann bókalaust námsefni á BBC. Aðferðafræðina fékk ég m.a. hjá Salvöru Gissurardóttur sem kenndi mér (og ég hef aðstoðað við að kenna) í námskeiðinu Nám og kennsla á netinu (Menntavísindadeild HÍ).

Í stuttu máli byggist námskeiðið á því að nemendur mæta í vikulegan tvöfaldan tíma, þar sem við hlustum á samtöl, æfum okkur að bera fram orð, lærum um merkingarsvið orða og ræðum um samfélagsleg og menningarleg mál tengd þýska, austurríska og svissneska málsvæðinu. Þá fara nemendur að vinna af vefnum (eyðufyllingar og samtalsæfingar). Ég kalla til mín einn og einn nemanda og ræði við hann á þýsku. Heimavinna er 10 – 20 mínútur á dag af netinu.

Nemendur eiga að safna samtalsæfingum (upptökum) á safnvef sem þeir halda sjálfir og taka reglulega munnleg og skrifleg próf.

Þótt enn sé of snemmt að dæma um það, sýnist mér formið henta krökkunum, líka þeim sem hafa sértæka námsörðugleika, s.s. lesblindu og einbeitingaskort. Enn sem komið er finnst þeim þetta skemmtilegt og þau öflugustu þeysast áfram og stoppa ekki við þær lexíur sem ég hef sett upp á vef skólans.

Vefurinn er enn sem komið er einföld vefsíða (FrontPage) og verður ekki breytt að sinni. Efnisvefurinn á BBC er síðan hér: Námsefnið er að finna á vef BBC – http://www.bbc.co.uk/languages/german/lj/

Related posts:

  1. Kennslutilraun: Ljóð og stafsetning
  2. Leikur að kortum
  3. Tóbaksauglýsing – án reyks

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

Tagged with:
 

Comments are closed.