Saga, mynd og kennsla

On Miðvikudagur, 28. október 2009, in Kennsluhugmyndir, Margmiðlun, Opinn hugbúnaður, sögugerð, Verkmappa, by Carlos

Listin að segja sögu tekur á sig ýmsar myndir, sérstaklega þegar nemendum er gefinn laus taumur. Hér vil ég segja frá dálitlu verkefni sem 5. bekkingar unnu hjá mér í fyrra. Verkefnið tók 10 – 20 kennslustundir, þá með því að nokkrir nemendur kusu að myndgera fleiri en eina sögu.

engill á teiknuðum bakgrunni

engill á teiknuðum bakgrunni (CF setti saman)

Að undangenginni innlögn um handritagerð og söguspjöld (ágætt tól til að hjálpa sér við þetta er Celtx, http://www.celtx.com). Ungir nemendur vinna best á útprentuð söguspjöld, sem þeir nota til að auðvelda sér myndatökur.

Nemendur sóttu sér nokkrar sögur á Netútgáfunni (http://www.snerpa.is/net) og fluttu í ritvinnsluforrit. Hér er um að ræða texta á opnu og aðgengilegu rými, textar sem ekki eru lengur höfundaréttarvarðir. Nemendur lærðu að búa til fyrirsagnir, efnisyfirlit og blaðsíðutal. Lásu síðan sögur sínar af skjá. Við lestur komust sumir að því að þeir skildu ekki öll orðin. Þá var gripið til netorðabókar (http://www.snara.is), orðunum flett upp og orðin ásamt útskýringum komið fyrir í neðanmálsgrein. Á þessum stað var verkefnið vistað og gætt að því að útlitshönnun for eingöngu fram með því að notaðir voru stílar (styles and formating).

teiknað og ljósmyndað í bland

teiknað og ljósmyndað í bland (nemandaverk)

Næsta skref var að nemendur teiknuðu myndir við sögur sínar í glærugerðarforriti (PowerPoint, OpenOffice Impress, Keynote). Síðan byrjaði fjörið. Nemendur komu með búninga í skólann og skipuðu félögum sínum í hlutverk. Ljósmynduðu síðan hvert annað í hópatriðum og einstaklingsatriðum með stafrænum myndavélum. Þessi þáttur gat tekið langan tíma. Nemendur skildu stundum ekki að þeir höfðu ekki ótakmarkaðan aðgang að hver öðrum, að þeir þurftu að taka stærstu hópatriðin þannig að allir voru til í réttum búningum á réttum tímum…

Þegar myndir voru komnar í vél, voru þær fluttar á sameiginleg svæði á innra neti og síðan í glærugerðarforrit. Þá tók við einstaklingsvinna, þar sem nemendur settu sögu, samtöl, hugsanir inn á einstakar glærur. Sumir nemendur fundu það út að þá vantaði myndir þegar hér var komið sögu og fóru aftur og tóku myndir.

Nokkrir voru svo hrifnir að þeir ákváðu að gera annað svona verkefni. Þá nemendur sá ég ekki í þrjá eða fjóra tíma samfleytt, en þegar þeir komu aftur, höfðu þeir á bilinu 50 – 80 myndir til að moða úr! Vitaskuld úr nýrri sögu.

Teiknað og ljósmyndað í bland (nemendaverk)

Teiknað og ljósmyndað í bland (nemendaverk)

Þegar myndatökunni er lokið, er eftirleikurinn auðveldur. Nota má bestu myndir nemenda til að búa til teiknimyndir í myndvinnsluforritum eins og GIMP (http://gimp.org) sem er ókeypis og frjálst forrit. Þeir nemendur sem vilja, geta haldið áfram vinnu sinni heima, þar sem hver sem er getur hlaðið forritinu á hvaða tölvu sem er sér að kosnaðarlausu, löglega. Forritið styður við marglaga myndir og leyfir nákvæman útskurð einstakra hluta og skeytingu þeirra á annan bakgrunn.

Nokkrar góðar hugmyndir um hvernig breyta má ljósmyndum í teiknimyndir má finna hjá Melissu Clifton (http://www.melissaclifton.com). Dæmi um notkun þessarar tækni er pólítísk ádeila og spéspegill Henrý Þórs á http://pressan.is/Gulapressan og http://henrythor.blogspot.com.


No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.