Tónlistarsamtíningur

Playing For Change | Song Around The World “Stand By Me” from Concord Music Group on Vimeo.

Ég held að hægt sé að gera svona að verkefni fyrir margmiðlunarhóp í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla. Mér sýnist maður þurfa eftirfarandi:

  • Tónlistarfólk
  • fartölvu, hljóðupptöku/klippiforrit (t.d. Audacity)
  • utanáliggjandi hljóðkort
  • lítinn mixer
  • míkrófóna og standa
  • vídeóupptökuvél
  • heyrnartól fyrir tónlistarfólkið
  • heyrnartól fyrir hljóðmann
  • aðgang að rafmagni
  • framlengingarsnúrur, fjöltengi, xlr snúrur o.s.frv.

Tótavíóla hefur svipaða hugmynd, bara miklu flottar útfærða fyrir skóla. Ég ætla að prófa hana í vetur í kennslunni. Hef að vísu ekki tónlistarnemendur (enda ekki tónlistarkennari) en sjáum hvað hægt er að gera í venjulegum grunnskóla í margmiðlunarvali.

Related posts:

  1. Farandstónlist í skólann
  2. Backpack – minnisbók og hópvinnutól

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.