Ódýr hýsing gagna á netinu hlýtur að verða tilefni til þess að fólk endurskoði geymslu miklilvægra gagna. Eitt innbrot, þar sem tölva, flakkari og fleira er tekið á ekki að verða til þess að ævistarfið hverfi líka! Skoðum dæmið aðeins. Skjöl eru yfirleitt ekki stórar skrár og hægt er að velja um nokkrar geymsluleiðir:
Google Docs – Officepakki á netinu sem geymir líka skjöl (ókeypis)
Dropbox – 2 gb gagnageymsla á netinu (ókeypis)
Nethýsing (líka ftp svæði), t.d. hjá Bluehost auglýsir ótakmarkað geymslupláss fyrir $7 á mánuði ef keypt eru tvö ár fram í tímann.
Þessar þrjár leiðir eru jafn innbrotsheldar og lykilorðið sem maður velur sér. Ef maður er nemandi í HÍ getur maður geymt gögn sín á netsvæði (svokallað F: drif), sem er heimasvæðið. Hægt er að stilla það svo, að maður tengist því hvaðan sem er (VPN), þannig að það birtist sem drif í hvaða tölvu sem er.
Óþarfi að týna skjölum sínum á 21. öldinni.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.