Við vitum auk þess núna að Björgólfarnir skulda ríkinu enn vegna kaupanna á Landsbankanum sem nemur hálfu kaupverðinu . . eftir tugmilljarðar hafa verið teknir út úr hinum fallna banka. Einkavinavæðingi fór nefnilega þannig fram að bankarnir lánuðu völdum hópum til að kaupa í hinum bankanum – sem síðan aldrei var greitt til baka . .eins og nú sést. Bensi í dag
Á meðan reynum við hin að greiða upp það sem við skuldum eins og rjúpan við staur á kaupi sem fer þverrandi. Við, almúgurinn minnum dálítið á gamla sögu frá Kúbu:
Í lok alþjóðlegs ungliðamóts kommúnistahreyfingarinnar ávarpaði Fidel Castro fulltrúa alþjóðaæskunnar sem var í þá mund að fara heim til sín. Hann veifaði til fulltrúa austurþýskrar æsku sem svaraði með fagnaðarópi:
Hér erum við, trygg og trú.
Hann veifaði til fulltrúa rússneskrar æsku sem svaraði með fagnaðarópi:
Hér erum við, trygg og trú.
Hann veifaði til fulltrúa angólskrar æsku sem svaraði með fagnaðarópi:
Hér erum við, trygg og trú.
Þegar hann var búinn að veifa öllum hrópaði kúbönsk æska til hans, en hann hafði ekki virt hana viðlits til þessa:
Hér erum við, trygg og trú.
Hann svaraði að bragði:
Hvar ættuð þið annars að vera, þið komist ekki neitt.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.