Það er skammgóður vermir að pissa í skóna
Reyndi að taka út það sem ég má af aukalífeyrissparnaðinum til að greiða upp myntkörfulánið á bílnum, áður en krónan er endanlega dottin niður í gegnum gatið á gólfinu í kjallaraíbúðinni. Komst þá að því að ég fengi milljónina mína í hómópatískum níu mánaða skömmtum að frádregnum skatti. Á þeim mánuðum á lánið mitt örugglega að hækka um 40% nema kraftaverk bjargi krónunni (sæll, eigum við að ræða það?). Þannig að ekkert er grætt á að hrófla við honum frekar enn að pissa í skóna í brunagaddi til að verma sig.
Bankarnir taka báðu megin af okkur (þegar við leggjum inn og tökum út, greiðum afborganir og greiðum upp) og ónýtir stjórnmálamenn gera vondan hlut verri með heftandi og lélegum lögum. Hafa vit fyrir okkur. Treysta þeir okkur ekki til að fara með fé okkar eins og best er?
Eins og sakir standa getum við, sem viljum gjarnan gera upp skuldir okkar aðeins glaðst yfir þeim slaka sem ríki og bankar gefa okkur á hengingarólina, sem við erum föst í. Við fáum nefnilega rétt nóg til að festa okkur betur.
Meiri er hún nú ekki, gæska bankans og Alþingis.
Related posts:
- Ég ætla ekki að fyrirgefa
- Þangað sækir klárinn sem hann er er kvaldastur
- Vísir – Afskriftir á Kaupþingslánum – Fráleitt að tala um refsiverð brot
- Hreinsunareldur
- Leggjum okkur aftur
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
Hjálpi mér hamingjan ef fólk fengi að greiða upp skuldir sínar á Íslandi. Það færi nú alveg með bankana enda stefna þeirra í eigin barmi að skulda allt og borga ekkert til baka.