svo sem vér og borgum vorum lánadrottnum …

On Fimmtudagur, 19. mars 2009, in Heimur, Stjórnmál, by carlos@annall.is

Ég er bara að prófa hvernig nýja viðbótin í bæninni sem allir kunna myndi hljóma. Las pistil Jónasar frá því áðan og fann mig sammála síðasta ræðumanni. Lengja í láni, check. Vera borgunarmaður, check. En þá get ég trútt um talað. Ræð við skuldbindingar mínar.

Mikið af vondri pólítík á sveimi. Mikið af lýðskrumi, lítið af þolgæði. Eins og þjóðin sé lögst í dvala. Hvað ætli vekji hana af tuði og til athafna? Ég held að næstu stjórnir munu ekki hafa jafn mikinn velvilja og þessi sem nú er og sú síðasta sem dó heilum fjórum mánuðum eftir að allt fór á verri veg.

Alla vega er Jónas meir og meir minn maður, alla vega í skrifum sínum. Og þá tel ég ekki matarskrif hans.

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.