Leggjum okkur aftur

On Föstudagur, 13. mars 2009, in Heimur, by carlos@annall.is

Leggjum okkur aftur. Leyfum þeim að vinna. Gefum þeim séns. Enda er það nú eitt sinn svo, að það þýðir ekki að benda, þýðir ekki að leita sökudólga, alls ekki rugga bátnum. Fáum réttlæti að lokum (hjá Methúsalem og Pétri). Enda er hætt við að ef við ruggum meir, þá falli ansi margir úr trénu kannski einhver sem við þekkjum. Þú og ég og allir. Leggjum okkur aftur. Við erum búin að berja nóg. Leyfum þeim sem eftir eru að vinna vinnuna sína svo að við höfum eitthvað til að rausa út af næst þegar við grípum í potta og pönnur.

(Alltaf snarpur, Jónas)

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.