Þessi færsla átti að vera um það hvernig ég sá Framtíðarþing Samfylkingarinnar, sem fram fór í gær. Ég tók þátt í því og fannst gott að vera. En svo kom sú frétt, að einn af aðalleikurum banka- og viðskiptabráðnunarinnar, Jón Ásgeir Jóhannesson fær áfram að stýra Baugi í skjóli Landsbankans. Með laun mánaðarlaun sem tekur mig a.m.k. 9 mánuði að afla mér og þyrlu, ekki að ég hafi neitt við svoleiðis fínerí að gera.
Flokkurinn sem ég kaus að vinna í er nátengdur Baugi og þeim feðgum Jóni og Jóhannesi. Ingibjörg Sólrún, í frægri Borgarnesræðu kaus að binda lag sitt við þá, kannski rekin þangað vegna andstöðunnar við Davíð Oddson og gömlu klisjunni að óvinir óvina minna eru vinir mínir.
Ég skil ekki mikið í hápólítík og viðskiptum, en hefur enginn annar virðingu og þekkingu til að bjarga því sem bjargað verður í þessu fyrirtæki?
Ég er hræddur um að ég bíði með að syngja flokki mínum lof meðan svona svínerí er óskýrt. Það sem ég mun gera er að færa öll viðskipti mín frá LÍ og yfir í sjálfstæðasta sparisjóðinn sem ég finn hér á landi. Helst vildi ég geta átt viðskipti við aðra en íslenska banka, en það gerist víst ekki í bráð! Illu heilli.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
Þú gerir þér vonandi grein fyrir því að það er skilanefnd gamla Landsbankans sem semur við Jón Ásgeir. Nýji Landsbankinn hefur ekkert með þetta að gera.
Merkilegt hvað fólk er fljótt að æsa sig við ranga aðila þessa dagana.
Eins og ég sagði, skil ekki mikið í hápólítík eða háum viðskiptum. Finnst samt ólykt af þessu. Bíð með lofsöngvana þangað til málið er ljósara. Efast um að það breyti nokkru um efasemdir mínar um hæfni íslenskra bankamanna um að gera hlutina rétt, réttlátt eða bara láta hlutina ganga upp.
Þá er JÁJ búinn að bera af sér ofurlaunin fyrir stjórnarsetu erlendis, 20þús. pund á mánuði urðu að árslaunum og það án fríðinda. Hljómar miklu eðlilegra miðað við aðstæður.
Leiðrétting mín var alveg óháð launum JÁJ. Reiði þín beindist að röngum aðila. Slíkt er alltaf frekar óheppilegt að mínu mati.
Rétt hjá þér. Ekki beint yfirveguð bloggfærsla þarna á ferðinni.