Digital storytelling presents a unique opportunity for students to acquire much more than new technology skills. It enables them to represent their voices in a manner rarely addressed by state and district curriculum while practicing the digital literacy skills that will be important to their 21st century futures. – Thomas Michael Banaszewski, 2005

Stafræn saga sameinar sjálfsævisöguna og tækni myndvinnslunnar, teikningar í tölvu, kvikmyndavinnslu, hljóðupptöku og vinnslu og getur farið út í prentvinnslu. Margmiðlun er safnhugtak mismunandi miðlunaraðferða.

Þessi færsla sameinar aðferð sögur og margmiðlunar. Notaður verður ókeypis og frjáls hugbúnaðar. Her er líka kennsluáætlun þriggja kennslustunda í námskeiðinu Nám og kennsla á netinu, vorið 09 eða MEN018F-V09 við Háskóla Íslands 9. febrúar milli 9 og 16. Næstu daga bætast við bloggfærslur um glærugerð, ræðuhöld og um leikjaforritun, allt út frá sömu hugmynd. Að segja sögu.

Tilgangur þessarar kennslustundar er margþættur. Að kynnast vinnubrögðum í mynd-, tón- og kvikmyndavinnslu. Vinna með sögu, líka í þágu námsefnisgerðar. Kynnast opnum hugbúnaði. Kynnast eðlilegu verkferli í skapandi vinnu. Kynnast textasöfnum, myndasöfnum, tónsöfnum og teikningasöfnum og geti greint milli efnis sem er höfundavarið og þess sem nota má á grunni opinna hugverkaleyfa.

Dagskrá staðlotunnar

Glærusýning um verkferli tölvuunninar hönnunar.

Kynning forrita og verkferla – 45 mín

  • Sýnidæmi verða tekin upp með hjálp Camstudio, vistuð á sameiginlegu svæði. Nemendur mega nota upptökur til klippitilrauna og vista þær á netlæga þjónustu að eigin vali.
  • Tuxpaint og notkun með börnum – teiknum þrívíða teikningu
  • Inkskape og vektorateikning – http://taeknimennt.net/index.php?title=Inkscape
  • Paint.net og Gimp, ljósmyndagaldrar – klippum út hlut og setjum á annan bakgrunn
  • Moviemaker eða iMovie – setjum saman myndasýningu úr ljósmyndum eða kvikmyndabútum og bætum við eigin hljóðum, tónlist eða tali. Hvorugt er vitaskuld “frjáls og opinn hugbúnaður”, en hann má finna http://tv.isg.si/site/?q=node/873 og http://www.junauza.com/2008/02/freeopen-source-video-editing-software.html (vefleit > open source video editor)
  • Scribus – setjum myndir og texta í bókasíðu eða plakat, tilbúið til prentunar í prentsmiðju
  • Gagnasöfn á netinu (myndir, textar, hljóð, myndbrot og kvikmyndir)

Verkefnavinna – 90 mín

1. Hópar myndaðir um verkefnin. Í hverjum hópi ætti að vera a.m.k. einn einstaklingur sem er vanur að vinna með kvikmynd, hljóð eða myndvinnslu, allt eftir því hvort hópurinn kýs að vinna kvikmyndaverkefni eða myndverkefni.

2. Viðfangsefni valið úr sögum geymdum á netinu, http://snerpa.is/net eða hliðstæð söfn á erlendum tungumálum.

3. Unnið úr viðfangsefni í söguspjald og hliðstæð verkfæri. Nota má glærusýningarforrit eða einföld teikniforrit ef vill. Blað og blýjantur er þó hugsanlega fljótlegri miðill. (takk Gunnar M. Andrésson)

4. Forrit og vinnuferli fara eftir eðli verkefnisins.
Myndvinnsla og myndskreyttur texti notast við OpenOffice Impress eða söguspjald í pappírsformi ásamt einföldu teikniforriti s.s. TuxPaint eða Paint.net.

  1. Fundið myndefni á ljósmynda eða teiknivefjum (http://flickr.com eða http://openclipart.org, ath að myndefni þarf að vera a.m.k. -cc- merkt).
  2. Teikningar unnar í vektorforritum með Inkscape eða punktateikningum með Paint.net eða hliðstæðum
  3. Ljósmyndir teknar að vild og lagaðar að sögunni. Ljósmyndavinnsla með Paint.net eða Gimp
  4. Vista allt í eina möppu á C:/ eða skjáborð (ef unnið er í skólatölvu)
  5. Ljósmyndum og teikningum má blanda saman. Gæta samræmis í upplausn ljósmynda. Paint.net eða Gimp, Inkscape.
  6. Flutt á heimasíðu með hjálp veftóla eða á blogg og/eða í rafbók/prentað form með Scribus

Kvikmynd eða fræðslumynd*) byrjar sem handrit og síðan söguspjald, sbr. leiðbeiningar í lið 3 og 4.

  1. Kvikmynd tekin upp eða skjákvikmynd búin til með hjálp CamStudio (Win) eða Snapz X Pro (Mac). Einnig má finna kvikmyndabrot með hjálp http://search.creativcommons.org eða á http://flickr.com, gæta að höfundarétti.
  2. Mynd klippt, titlar, skiptingar milli atriða, Moviemaker (Win) eða iMovie (Mac)
  3. Hljóð tekið upp og skeytt saman við mynd, Audacity
  4. Fundin tónlist af http://opsound.org og myndir af http://flickr.com eða http://openclipart.org ef það passar í verkefnið.
  5. Vista allt í eina möppu á C:\ eða skjáborð (ef unnið er í skólatölvu)
  6. Hljóð skeytt að kvikmynd, hækkað og lækkað eftir þörfum.
  7. Flutt út sem MPEG, Flash, Avi, QuickTime eða annað stafrænt form (eftir þörfum) eða beint á vef á borð við Youtube, Vimeo, Google Player, Kalthura, TeacherTube eða hliðstæða þjónustu og vafið í eigið blogg eða sérstaka síðu.

Sambland þessa má ná með því að taka upp leiklestur má nýta myndefnið í kyrrmyndasýningu. Audacity, Moviemaker eða iMovie ásamt tónlist af http://opsound.org

Eftir staðlotu

frekari vinnsla, svo og eftirfarandi liðir:

5. Prufusýning
t.d. á staðlotu í apríl, í smiðjutímum, á bloggi nemanda. Athugasemdir samnemenda verða að vera uppbyggilegar og “to the point”.

6. Endurvinnsla
á grunni athugasemda en sjálfstæð vinnubrögð nauðsynleg!

7. Frumsýning og innlögn
Skilaverkefni skv. námskeiðslýsingu sem hluti lokaskila.


* Hvernig getur fræðslumynd orðið að sögu? Skoðaðu aðferðir David Attenborough í gerð fræðslumynda.

Heimildir

Banaszewski, Thomas Michael, Digital Storytelling: Suppporting Digital Literacy in Grades 4 – 12, Georgia Institute of Technology 2005, sótt 8. 2. 2009 á http://etd.gatech.edu/theses/available/etd-04182005-170416

Barrett, Helen, Digital Storytelling, http://helenbarrett.com/digistory/index.html, sótt 8. 2. 2009

Educational Uses of Digital Storytelling (háskólinn í Houston) – http://digitalstorytelling.coe.uh.edu

One Thousand and One Flat World Tales Project Page, 2007 – 2008, http://burell9english.wikispaces.com/ sótt 8. 2. 2008 – enskuverkefni 9. bekkjar þriggja skóla

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

Tagged with:
 

One Response to Saga og margmiðlun í skólastarfi

  1. [...] Salvör aðstoðaði við Wiki (nánari upplýsingar á blakkur.khi.is), Carlos við hönnun og margmiðlun, sjá bloggið http://skrif.hi.is/carlosf/archives/135. [...]