WordPress blogg sem ePortfolio

On Þriðjudagur, 27. janúar 2009, in Öryggi, Persóna, Verkmappa, by Carlos

… margir hafa búið til sérstaka síðu um verkefnskil. Er það eitthvað sem fólk ætlar almennt að gera? – Harpa Guðfinnsdóttir 27. janúar.

Þegar rafræn verkefnamappa er hönnuð borgar sig að horfa á miðilinn annarsvegar og útlit hans hinsvegar. Eðli bloggsins er að eftir því sem dagbókarfærslum fjölgar, ýtist eldra efnið niður eftir listanum. Til að finna það aftur þarf að nota efnisorð og flokka, ef langt er liðið frá því að það var skrifað. Heimasíðan gamla eða nútíma CMS (t.d. Joomla!) er ekki svoleiðis. Þar er það efnisyfirlit sem flokkar efnið og auðveldar alla leit.

Pages í WordPress er einmitt þannig. Hægt er að kanna síðu eftir námskeiði (t.d. NKN09v) og síðan undirsíður undir henni, sem hétu skil 1, skil 2 … lokaskil. Þannig væri hægt að móta bloggsíðu að námi.  Bloggið væri hægt að helga hugsunum sem vakna í námi eftir því sem við á. Það þarf hinsvegar að flokka eftir námskeiðum og tengja við efnisorð eftir því sem við á.

Ekki er úr vegi að nýta sér þá möguleika sem gefast af því að hafa sumar færslur “prívat”, “draft” o.s.frv., þannig að munur verði á vinnu- og skilamöppu.

Viðbúið er að þegar námi lýkur verði bloggið lagt niður. Þá þarf að huga að því að hægt sé að flytja færslur úr skólablogginu á nýtt bloggheimili, því að allt sem unnið er í skóla er til vitnis um getu manns. Vinnuveitendur framtíðar munu vilja geta séð hvað í manni býr. Þá er heldur ekki úr vegi að huga að því að sumt hæfir ferli manns, annað ekki. Vilji menn ekki henda sumum færslum, má alltaf gera þær almenningi ósýnilegar með því að merkja þær “private”.

Mynd fengin af Flickr.

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

3 Responses to WordPress blogg sem ePortfolio

  1. hag38 segir:

    Sæll Carlos

    Ég bjó til undirsíðu hjá mér (við hliðina á um) sem heitir Nám og Kennsla á netinu. Þar undir bjó ég síðan til aðra (page) sem ég kalla verkefni 1. Þegar ég fer á Nám og kennsla á netinu síðuna þá kemur verkefnasíðan ekki upp. Ég náði að gera hana sýnilega með því að setja Efnisyfirlit inná síðuna (neðst vinstra megin). Er því með tvær spurningar; er eitthvað sem þér dettur í hug að ég sé að gera vitlaust þar sem hún sést ekki nema í efnisyfirlitinu og hitt er, hvernig get ég fært efnisyfirlitið upp þannig að það sé efsti dálkurinn?

    Kveðja
    Harpa

  2. carlosf segir:

    Mér sýnist þetta vera bundið við sniðmátið sem þú notar og síðan hvernig “widgets” raðast hinsvegar. Athugaðu að sum sniðmát styðja ekki hliðarreinar, aðrar allt frá einni til þriggja dálka. Svo eru sniðmát sem nota einskonar felliglugga.

    Reynsla mín er sú að það tekur svolítinn tíma að finna sniðmát sem hentar og sumir búa til sitt eigið.

    Auðveldast er að draga widget sem er líkast til í “sidebar 1″ sem heitir Efnisyfirlit efst eða birta það þar sem þú vilt í “sidebar 2″.

  3. carlosf segir:

    Mér sýnist þetta vera bundið við sniðmátið sem þú notar og síðan hvernig “widgets” raðast hinsvegar. Athugaðu að sum sniðmát styðja ekki hliðarreinar, aðrar allt frá einni til þriggja dálka. Svo eru sniðmát sem nota einskonar felliglugga.

    Reynsla mín er sú að það tekur svolítinn tíma að finna sniðmát sem hentar og sumir búa til sitt eigið.

    Auðveldast er að draga widget sem er líkast til í “sidebar 1″ sem heitir Efnisyfirlit efst eða birta það þar sem þú vilt í “sidebar 2″.