Vandi, lausn og nám

On Fimmtudagur, 15. janúar 2009, in Kennsluhugmyndir, Margmiðlun, by Carlos

Síðasti fyrirlesturinn, Randy Baush, á YouTube (látið vita, ef myndin hverfur). Ein góð kennsluhugmynd kom af áhorfi þessarar klukkustundalangrar myndar.

Verkefnamiðað nám

Námsmat á grundvelli skilaverkefna, sjálfsmats, félagamats og sýnimöppu sem kennari metur. Framkvæmdin getur litið svona út:

  • Margvísleg verkefni – nýtt verkefni á nokkurra vikna eða nokkurra kennslueininga fresti
  • “Head fake”: leyfa fólki að læra á meðan þau eru að gera eitthvað annað
  • Teymisvinna – nýtt teymi fyrir hvert verkefni – blanda góðum og miður góðum nemendum í hópana á grunnskólastígi til að margfalda áhrif kennslunnar
  • Teymið ákveður verkefnið – kennari hvetur til frekari umhugsunar (t.d. “gaman að þessu, en ég held að þú getir / þið getið betur”)
  • Félagamat – hversu auðvelt var að vinna með þér – búa til graf um það hvernig maður stendur sig og sýna það þannig að nemendur geti bætt sig í samstarfi á milli verkefna

Auðvitað komu fleiri hugmyndir – sú besta er í titli myndarinnar og þessarar bloggfærslu. Ef þú lumar á hugmynd, leyfðu okkur að njóta með þér í athugasemdum hér fyrir neðan.

Kennsluhugmynd

Áður birt á vef Borgaskóla, janúar 2009, tölvuval 9. og 10. bekk. Nemandi velur eitt eftirtalinna verkefna. Verkefnið stendur í fimm vikur, skil eru í rafrænni ferilmöppu. Gildir 25% af misseriseinkunn. Ekki fleiri en 3 í hverjum hóp, einstaklingsvinna leyfð.

A Ljósmyndir og vefur

Myndataka með módeli í fjórum hlutverkum sem nemandi útfærir.

  • Ofurhetja
  • Venjuleg
  • Myndasaga
  • Eigin stíll

Vefmyndir búnar til úr þeim myndum sem nemandinn tók og bætti.

  • Lógó eða vörumerki
  • Haus
  • Bakgrunnur
  • Gif – animation eða Flash hreyfimynd

Ljósmyndavefur sem nemandi setur upp.

  • Teikna uppsetningu ljósmyndavefs
  • Setja upp einfaldan ljósmyndavef

B Hljóðupptaka og hljóðvarp

Þáttargerð – nemandi býr til útvarps eða vefvarpsþátt frá grunni

  • Útvarpsþáttur, fréttaskýring, leikrit
  • Búa til handrit

Tónlist

  • Búa til eða fá lánað kynningarstef
  • Finna tónlist til að spila inni á milli
  • Sækja um leyfi hjá STEF fyrir höfundavarið efni, fá upplýsingar hvað kostar að birta þáttinn í hljóðvarpi á netinu

Myndefni

  • Búa til myndefni til kynningar
  • Búa til auglýsingu á vefinn
  • Búa til heimasíðu fyrir hljóðvarpið
  • Sækja um leyfi hjá rétthöfum fyrir myndefni þar sem við á

Vefur

  • Setja hljóðvarpið á vef
  • Auglýsa hljóðvarpið

C Kvikmynd og skjávarp

Búa til stuttmynd, hámark 5 mín eða kennslumyndband með hjálp skjárkvikmynda (Screencast)

  • Handrit
  • Sögugerð
  • Kvikmynd og hljóð þurfa að passa saman

Hljóð og tónlist

  • Búa til eða fá lánað kynningar og lokastef
  • Sækja um leyfi hjá STEF fyrir höfundavarið efni, fá upplýsingar hvað kostar að birta kvikmyndina á netinu
  • Birta á Vimeo, Google Video eða YouTube

Vefur

  • Setja stuttmyndina á vef
  • Auglýsa hljóðvarpið

D Leikjaforritun og kynning

Scratch forritun

  • Mr. Wiggly’s Dance – umhverfi og hreyfing
  • Fiskabúr – samspil persóna
  • Fjölskyldualbúm – söfnunarforrit
  • Íþróttagetraun – spurningaleikur

Búa til sjálfstæða persónu fyrir tölvuleik

  • Ljósmyndir eða teikningar
  • Vista í formi sem hægt er að nota í ýmsum tölvuleikjamálum

Vefur

  • Auglýsing
  • Kynningarefni

Eftirmáli

Ég vona að þú hafir horft á allt myndbandið. Hér fyrir neðan eru síðan viðtöl við Randy Bauch, sem er í lagi að horfa á, en bætir engu við þessa færslu.

Síðasti fyrirlesturinn kom út hjá Sölku í vetur og fæst einnig á Amazon. Forritið Alice er hægt að finna á http://www.alice.org/.

Ræða Randy Bauch við skólaslit.

Síðasta ræða Randy Bauch.

Takk Tumi.

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

Comments are closed.