Tæknismiðja dagsins 31. janúar 2009 var áhugaverð um margt fyrir mig sem kennara. Sumt gekk eins og í sögu, annað mistókst hrapalega. Sumt var eins og í var lagt. Neyðarlegast var að ég gleymdi að ýta á fyrr en í miðjum fyrri tíma og að skrúfa frá hljóði í upphafi þess seinni
Ég mætti snemma, í þetta sinn með tvo condensermíkrófóna, s.s. hljóðnema sem þarfnast straums frá hljóðborði til að nema hljóð úr fjarska. Ég hafði lítið hljóðborð, tvær vefmyndavélar og kynstrin öll af snúrum. Míkrófónar fóru í hljóðborðið og hljóðið úr því beint í tölvuna, þar sem míkrófónninn fer venjulega (bleik innstunga). Þetta gekk en voru fyrstu mistökin sem ég gerði.
Ég var búinn að setja upp ManyCam til að skipta á milli myndavélar og skjáborðs tölvunnar. Þetta gekk eins og í sögu. Ég gat því ráðið því á hvað nemendur, sem voru fjarri horfðu á meðan ég kenndi. Þetta voru önnur mistökin mín.
Ég hafði látið setja iTalc inn á allar tölvur og kennartölvan gat því tengst við alla sem skráðu sig í tölvur í stofunni (nema þau sem komu með eigin tölvur). Þetta gerði mér kleift að veita þeim sem lentu í vanda aðstoð með því að varpa skjáborði þeirra á tjaldið og beina þeim á réttar brautir. Þetta voru þriðju mistökin mín.
Ég hafði með mér lampa, sem lýsti andliti mínu meðan slökkt var á ljósum. Fólk sá betur á tjaldið. Þetta voru engin mistök. Ég hafði sett upp kennslustundina á heimasíðuna með útendingunni, þannig að fólk gat séð hvað var á dagskrá og hélt tímaáætlun með smá frávikum. Þetta fannst mér ganga vel.
Mistök 1 – 3 fólust í eftirfarandi:
Ef hljóð er tekið beint úr hljóðborði og sett í tölvu þarf örgjörvi tölvunnar að vinna úr hliðrænu hljóðmerki og breyta því í stafrænt, áður en það er sent út í hátalarana eða um internetið til áhorfenda.
ManyCam styður við skjáupplausnina 640 * 380 eða svo. Allt of lítið fyrir skjákennslu, þótt það nægi fyrir talandi hausa. Hér hefði Dimdim líkast til verið betra.
Útsending á mynd og hljóði tekur mikið til sín af vinnsluminni og vinnslugetu. Það er því vafasöm æfing að ætla sér að vafra á netinu og fylgjast með 13 tölvum á sama tíma. Ég hef líkast til kaffært fleiri en nemendur með vinnu í dag. Því fór sem fór, útsendingin varð slitrótt og fjölgaði um helming í hléinu, þar sem nemendur komu í skólann til að taka þátt.
Leiðir til úrbóta
munu felast í því að koma með utanáliggjandi hljóðkort til að sjá um að breyta hliðrænu hljóði í stafrænt og skila því í tölvuna.
Undirbúa heimasíður betur undir að fólk sæki þangað kennsluskjöl, ef ég held mér við uStream.tv. Annars skoða annar fjarfundarbúnað, s.s. Dimdim.
Fá aðstoðarmann til að sjá um hljóð og myndeffecta.
Dagskrá tæknismiðjunnar 31. 1. 2009
Dagskrá smiðjutímans
10 – 10.45 – kynningar og tæknileg atriði
10.45 – 11 – hlé
11 – 11.45 – umræður, samvinna, notkun tóla æfð
11.45 – 12 – óleystar spurningar skráðar í blakk, blogg, google docs o.s.frv.
Skilaverkefni – 9. febrúar 2009
- Grein í íslensku Wikipedia – ákveða greinina og skrifa nokkrar línur
- Wikilexía í wiki.khi.is – ákveða lexíuna, skrifa inngang og skrifa nokkrar spurningar
- Efnisvefur um sjálfvalið efni – ákveða efnið og byrja á því (nokkrar línur)
- Vefþjónusta – 5 færslur í Twitter og del.icio.us; skráning í myendnoteweb.com; þátttaka í namogkennsla.ning.com
- Sækja og innsetja Inkscape, Paint.net og Tuxpaint (nota Google til að finna)
Tækni, tól og verklag
- uStream.tv kynning og létt prufa. Nemendum boðið að vera co-host, ef vilja, en gekk ekki eftir, ástæður skoðaðar síðar.
- ManyCam/Camtwist kynning
- iTalc kynning
- RSS Feedreader (t.d. Google Reader, NewsGator, BloggGáttin) kynning
- Personal Learning Networks – Sue Waters
Spurt og svarað úr veruleikanum
Fyrst nokkur dæmi um notkun og misnotkun, munur á kenningu og reynd
- skráning í vefþjónustu “í beinni”, nánar hér
- eldveggir, websense og kerfislagg
- nemendur fatta það – uppgötva veftól og nota þau
Grundvallarafstaða til náms og kennslu með tilkomu upplýsingamiðla og samvinnu á netinu
- námsbókin almáttuga úrelt – leita að efni á Wikipedia (t.d. náttúrufræði, copy paste vs. hvar eru bestu upplýsingarnar og af hverju eru þær góðar?)
- nemendur búa til eigin námsbækur, efnisveitur, í samvinnu við kennara (t.d. með hjálp WordPress bloggs eða Wikivefja – sbr. http://www.youtube.com/watch?v=hmkqcp11pHM, http://kvikmyndaborg.wikidot.com)
- nemendur geta mótað námskeiðið meir en áður og með formlegri hætti (t.d. með nemendabloggi, samfélagsvef á borð við Ning eða Wetpaint/Wikispaces (Hróbjartur Árnason, Chris Burrell)
Að lokum: Vill einhver prófa og blogga um
- Glogster.com
- playauditorium.com
- Tux4Math Command (leita í Google)
- Flickr, CoolIris viðbótin fyrir Firefox og RSS straumar úr Flickr í WordPress
- WordPress hjálp á Edublog – http://theedublogger.edublogs.org/getting-started-with-edublogs/
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
