Facebook er eins og hvert annað torg í hvaða byggðalagi sem er. Allt sem þú gerir þar er sýnilegt þeim sem fara um. Sumt er þér til sóma, annað ekki.
Svona er það um bloggið, spjallið, blaðaskrif, orðræðu og hvað annað sem við gerum á opinberum vettvangi.
Enginn getur hlaupist undan leitarvélinni Google og enginn getur verið óhult fyrir vakandi auga almennings, sem oftar en ekki er vopnaður ljósmyndavél eða farsíma með myndavél, albúinn að fanga augnablikið.
Meðvitund almennings nær til allra skúmaskota. Menn eru að vísu misfljótir að gleyma, en á stundum fylgir dauður og rotnandi orðstír manns hvert sem maður fer.
Sem þátttakendur í einu stærsta málfundarfélagi Íslands, blog.is, eigum við að vera okkur meðvituð um áhrif orða okkar. Sömu meðvitund eigum við að hafa með okkur út í sérhvert samfélag sem við ræktum á netinu. Bók Daniel Solove, Future of Reputation (Yale) 2007 ætti að vera okkur öllum skyldulesning. Hvort sem við skrifum undir nafni eða ekki.
Okkur ber skylda til að upplýsa komandi kynslóð, nemendur okkar og börn um afleiðingar sem gjörðir okkar hafa. Hvort heldur sem er á neti sem í lifuðu lífi okkar.
Hægt er að kaupa hana á Amazon eða sækja hana án endurgjalds á heimasíðu bókarinnar. – http://docs.law.gwu.edu/facweb/dsolove/Future-of-Reputation
Myndin er geymd á heimasíðu bókarinnar, vísað er til hennar hér. Hér eru frekari upplýsingar um fyrsta dæmið sem höfundur tekur í bókinni, hundaskítstelpuna – http://en.wikipedia.org/wiki/Dog_poop_girl. Auðvelt líka að finna hana með vefleit.
Áður birt á http://carlos.blog.is
Related posts:
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.