Hvar eru þessar tugþúsundir sem eru í viðráðanlegri fjarlægð, við sæmilega heilsu og ættu að mæta á Austurvöll klukkan 15 á laugardögum og tjá óánægju sína með nærveru sinni þar? Eruð þið í Kringlunni eða Smáralind? Heima að horfa á enska boltann eða þrífa? Í sundi eða húsdýragarðinum? Hvar eruð þið?
Lára Hanna er einn skeleggasti bloggarinn á Íslandi um þessar mundir. Hún hefur safnað og heldur til haga ógrynni sjónvarpsefnis, prentefnis og bloggfærslna um samtíma okkar. Færslan sem hér fer á eftir fjallar samfélagslega ábyrgð okkar allra. - Ó, þjóð mín þjóð – larahanna.blog.is.
Við þetta er fátt að bæta annað en með skrifum sínum minnir hún mig á Martin Niemöller, sem tók þátt í andspyrnunni við einræðisöflin í Þýskalandi á tímum þriðja ríkisins. Hann benti einmitt á að án samstöðunnar er hægt að búta okkur í smáa hópa, sem eiga fátt annað sameiginlegt en að verða viðráðanleg stærð þegar til stykkisins kemur. Nánar á http://en.wikipedia.org/wiki/First_they_came
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.