Google gleypir

On Föstudagur, 23. janúar 2009, in Internet, Öryggi, Persóna, by Carlos

… meir og meir. Nú er ég búinn að tengja þetta blogg við Google Analytics. Stjórnendur skrif.hi.is bjóða upp á tenginuna, frekar en að sækja plögg sem gerir svipað. Í sjálfu sér sársaukalaus aðgerð. En samt er rétt að spyrja sig af og til hversu sniðugt það er að lifa í skugga stórveldis.

  • Google býður upp á leitarvél og hún heldur utan um upplýsingar um hegðun okkar á netinu. Dálítið eins og Gallup.
  • Google býður upp á hýsingu heimasvæðis, skjala, mynda, kvikmynda og texta bóka. Með því að nota þá þjónustu og neyta þess sem þar er að finna, lærir Google mikið um okkur og heldur því til haga.
  • Í hvert sinn sem við þiggjum þjónustu Google annars en leitarvélarinnar, býðst okkur að láta fyrirtækið “gleyma” vefferli okkar. Það er ekki svo að gleymskan sé fyrsti kostur, maður þarf að muna að velja sig frá stálminninu.
  • Þekkinguna á hegðun okkar notar Google til að selja auglýsingar. Það er í sjálfu sér meinlaust ef maður er fullveðja einstaklingur. En netið gerir ráð fyrir því að frá 13 ára aldri viti maður fótum sínum forráð, sbr. inntökuskilyrði Facebook, sem eru þverbrotin af 6. og 7. bekkjar nemendum mínum. Verði þeim á þá sjá það allir. Þökk sé stálminni Google fennir síðan ekki í sporin, eins og dæmin sanna.

Bara þetta síðasta ætti að fá sérhvern kennara að staldra við og hugsa áður en hann nýtir sér “ókeypis” þjónustu risanna í þessum heimi.

Ef eina ástæðan er sú að “það er ókeypis” þá ætti maður að muna, að ekkert er án kostnaðar í þessum heimi.

Related posts:

  1. Google Docs í stað OpenOffice!
  2. Orðstír og eyðilegging
  3. Útrás í almannaeign

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

Tagged with:
 

Comments are closed.