
eða rafrænar ferilmöppur eru kærkomin viðbót við skólastarfið. Ýmis kerfi eru í boði, misflókin og misvel hönnuð. Hér er ein, sem ég setti upp fyrir tiltekið námskeið á Menntavísindasviði Háskóla Íslands núna í vor og ætla að nota svolítið áfram, á meðan að á námskeiði stendur. Ég hef notað þetta kerfi fyrir nemendur mína í Borgaskóla. Þeir nýta sér flestir Google Sites fyrir verk sín, hvað svo sem verður í náinni framtíð.
Fljótt á litið eru kostir Google Sites þeir, að auðvelt er að setja heimasíðuna upp, nemendur í 7. – 8. bekk eru um 30 mínútur, eldri nemendur grunnskólans um 10 mínútur og fullorðnir námsmenn 5 mínútur þangað til að síðan er nothæf.
Gallinn er sá, að þar sem ekki er hægt að hlaða inn lista notenda eftir tilteknum staðli (t.d. notendanöfn ákveðins kerfis) þá getur verið erfitt að halda utan um verk stórs nemendahóps með þessu móti.
Related posts:
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.