Að færa námsumhverfið til nemandans

On Fimmtudagur, 15. janúar 2009, in Einstaklingsmiðað nám, Verkmappa, by Carlos

… við erum að færa námsumhverfið til nemandans og hann tekur virkari þátt í að skipuleggja sit eigið nám … Það er líka líklegt að það verði algengara á yngri skólastigum að nemendur haldi sjálfir utan um sitt nám … námsmatið verði ekki miðað við próf heldur að milku leyti miðað við skilaverkefni nemenda og nemandi skrái námsferlið þannig að við vitum hvort og hvaða nám hafi farið fram.

 

sagði Salvör Gissurardóttir í námskeiðinu Kennarinn í starfi fyrir tveimur árum síðan. Með þessu finnst mér hún vísa til þess að kafla, nei, árþúsundaskil eru að verða í skólastarfi. Gamla dósentskerfið, sem byggir á fyrirlestri (og prédikunarstóllinn í kirkjunni er rótækasta myndbirting þess) er að víkja fyrir jafningja- og einstaklingsaðferðum sem eiga sér fyrirmynd í fullorðinsfræðsluaðferðunum sem þú nefndir. Hér er komið að einstaklingsmiðuðu námi í sinni tærustu mynd!

 

Við þurfum ný verkfæri og nýja tegund af námsumhverfi fyrir þannig nám … sem gerir það sama fyrir okkur og kaffitímarnir og pásurnar og umræðurnar í skólanum.

benti hún á. Það er ekkert nám sem fer fram með því að hlusta á fyrirlestur. Það fer fram hlustun. Námið byrjar þar sem nemandinn spyr spurninga og umræður verða til. Ég held að það sé aðalsmerki fullorðinsfræðslunnar að innleggin eru með styttra móti og samskiptin og jafningjafræðslan ríkja. Þetta er lýðræðisleg grasrótarnálgun á námi og er róttækt önnur aðkoma en dósentsmódelið. Á meðan að ræðupúltið og prédikunarstóllinn eru tákngerfingjar þess, er hringurinn og miðlunaraðferðin tákngerfingjar þess námsumhverfis sem koma skal. Bloggið með opnu umræðusvæði, umræðukerfi eins og í námsumsjónarkerfum og önnur fjöldasamskiptakerfi eru viðeigandi verkfæri þessa námsmódels.

(Áður birt á elgg.khi.is)

Related posts:

  1. Örugg gagnageymsla

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.