Hreinsunareldur

On Sunnudagur, 14. desember 2008, in Heimur, Stjórnmál, by carlos@annall.is

Bankakortið brennt með öðrum táknum feðgaveldisins

Bankakortið brennt með öðrum táknum feðgaveldisins · mynd: Salvör

Fyrir mér eru dagar gamla Íslands og gömlu flokkana taldir. Spurning er bara hvernig þeir endurskapa sig.

Þetta er í raun óskup einfalt. Ef við höldum áfram að “sitja bara hjá og glápa” þá rísa gömlu flokkarnir upp aftur eins og Gólem eða djákninn frá Myrká. Þeirra verk verður þá að gera hlutnina eins og þeir hafa alltaf gert, allt frá Hannesi Hafstein ráðherra og bankastjóra, Jónasi úr Hriflu og nú síðast þeim Davíð, Geir, Jóni Ásgeir, Björgúlfunum og hvað þau öll heita.

Hinn möguleikinn er sá að við hjálpum þeim að brenna hið gamla og vera má að upp rísi nýr Fönix. Hvort bruninn verður heitari og meiri eða kaldari og minni, er undir varnarháttum þeirra og ákveðni okkar, sem vöknum komið. Ég er að minnsta kosti farinn að trúa að sannleikur sé í klisjunni að þjóðin fái þá stjórnendur (í víðasta skilningi – líka banka- og viðskiptastjórnendur) sem hún á skilið. Enga stofnun lýðveldisins má undan skilja, ekki ríkisstjórn, ekki Alþingi, ekki ráðuneyti, ekki banka, stórfyrirtæki og alls ekki Þjóðkirkjuna, sem er sama marki brennd og samfélagið allt – síst betri.

Ég er á því að nú er tími til að taka þátt í stjórnmálum, nýjum stjórnmálum. Sýna mótmælendum samstöðu. Ganga í stjórnmálaflokk, spurja spurninga og ef maður er beðinn að axla ábyrgð, að færast ekki undan henni. Mótmælum fylgir sú siðferðilega skylda að leita svara og standa við þau.

Einkenni nýs Íslands verður að vera hreinskilni (eða a.m.k. rekjanleiki upplýsinga), ábyrgð í merkingunni “accountability”, þar sem hægt er að draga til ábyrgðar án þess að setja í gapastokka, dreifing áhættu og dreifingu ábata.

Sjá nánar:

http://manisvans.blog.is/blog/manisvans/entry/743624/

http://kritor.blog.is/blog/kritor/entry/743345/

http://carlos.blog.is/blog/carlos/entry/743923/

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

One Response to Hreinsunareldur

  1. [...] það ekki dæmigert, að karl skuli stela senunni í frétt helguð frumkvæði kvenna í stjórnmálum? Eða áttu þeir ekki [...]