Það sé ekki hægt að tala um mismunun gagnvart hluthöfum þegar hluthafar hafi sjálfir samþykkt þennan mismun á aðalfundi 2004. „Upphaflega höfðu þessir starfsmenn kaup- og sölurétt og sölurétturinn tryggði þá fyrir því að þeir færu alltaf skaðlausir út úr þessu,” segir Brynjar. „Með þessu sölurétti voru starfsmenn tryggir fyrir því að þeir gætu þá selt þegar komin var hætta. Þá gátu menn bara selt og borgað skuldina. Það væri öðruvísi ef það lægi ekki fyrir,” segir Brynjar. Vísir – Afskriftir á Kaupþingslánum – Fráleitt að tala um refsiverð brot.
Hvað um það, þetta breytir fáu öðru en því að menn voru búnir að tryggja sig fyrir löngu. Ætli verði ekki bara að taka þessu öllu með góðri trú?
Vandinn er ætíð sá sami, þegar gengið er gott spurja fáir hvaðan gott kemur. Þegar kreppir að, fer ljósið að skína í hornin.
Það verða barnanbörn okkar sem gera upp þessi mál, hvorki við né börn okkar.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.