Ég sé fram á það að skipið geti hugsanlega siglt í strand – Ég læt alla yfirmenn skipsins setjast í björgunarbát, laustengdan skipinu og fjarstýra því síðan. Ef strandar, eru yfirmenn með sitt á þurru. Aðrir skipverjar fá ekki þessa þjónustu.
Þetta eru hugsanir mínar við Kastljósviðtali Sigmars við Gunnar Pál í bankaráði Kaupþings og formanns VR í kvöld. Verst að Sigmar nær ekki að sjá þennan flöt. Yfirmennirnir áttu hvorki að fá að selja á síðustu stundu né að sleppa við persónulegar ábyrgðir. Til þess voru þeir á ofurlaununum …
Gamall brandari segir frá flugstjóra:
“Farþegar góðir, ef þið vilduð vera svo vænir að horfa út um vinstri glugga flugvélar, þá sjáið þið að hreyflar hafa stöðvast. Hægra megin er vængurinn alelda. Þið getið séð mig og áhöfnina veifa til ykkar úr fallhlífunum hér aftur með og neðan við ykkur. Takk fyrir að hafa flogið með okkur í dag.”
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.